Opus One 1996

Höfundur: Eiríkur Þann 1. janúar 2001

Vín mánaðarins í maí 2000 er Opus One frá samnefndum víngarði í Napa í Kaliforníu. Það er samstarfsverkefni tveggja risa í vínheiminum – Robert Mondavi, eins frægasta víngerðarmanns í Kaliforníu, og Philippe de Rothschild baróns frá Chateau Mouton-Rothschild í Bordeaux. Fyrsta uppskeran leit dagsins ljós árið 1979 og kom á markað 3 árum síðar. Það þótti hið ágætasta vín og síðan hefur það sífellt farið batnandi og telst nú með bestu vínum heims og nú er komin í hús 20. uppskera þessa merka víns.

Margt hefur breyst í víngerðinni síðan Opus One fór á stjá og margar nýjungar hafa einmitt komið út úr þessu samstarfsverkefni. Opus voru t.a.m. fyrstu í Kaliforníu til að gróðursetja vínviðinn þéttar en áður hafði tíðkast (þeir þurftu svo að rífa hann allan upp vegna phylloxera-rótarlúsarinnar sem herjaði á vínviðinn) og víngarðurinn var sá dýrasti í sögu Kaliforníu. Þá hefur einnig lengst sá tími sem líður þar til hýði og hrat eru skilin frá safanum en þroskatími í eik aftur á móti styst. Þannig lá 1979 árgangurinn í 10 daga með hýði og hrati en 1996 árgangurinn í 37 daga. Opus ’79 var 24 mánuði í nýrri eik en Opus ’96 aðeins 19 mánuði.

Mjög dökkt og fallegt vín, djúpt en unglegt. Lyktin ríkuleg þar sem bregður fyrir sólberjum, blýanti, eik, örlar á sýru við þyrlun en þá kemur fram pipar, útihús (súrhey?), kaffi og ferskar perur! Margslungin og þétt lykt. Í munni er þetta hörkuvín, góð fylling, gríðarlega langt og gott eftirbragð – kaffi og leður, aðeins tannískt. Dæmigerður Bordeaux-stíll (Pauillac eða Pomerol). Franskara en fyrri árgangar.

Tímaritið WineSpectator setti 1996 árganginn í 2. sætið yfir 100 bestu vín ársins 1999, gaf því 96 stig – Cellar Selection – og þessa umsögn: “Bold, rich and leathery, with tiers of currant, mineral, spice and sage. A remarkably complex and deeply concentrated wine that’s potent while it strays into an earthier spectrum. Best from 2001 through 2009.”

Einkunn: 9,0

Related posts:

  1. Cakebread Cellars Cabernet Sauvignon 1996
  2. Turning Leaf Zinfandel 1996
  3. Geyser Peak Sonoma County Shiraz 1996
  4. Beringer Napa Valley Private Reserve Chardonnay 1997
  5. Chateau Ste. Michelle Cabernet Sauvignon 1995

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: