Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1999

Höfundur: Eiríkur Þann 1. mars 2002

Vínið er blandað úr 90% Sangiovese og 10% Cabernet Sauvignon og öðrum rauðum þrúgum sem valdar eru af Santa Cristina, Peppoli og Badia a Passignano vínekrum á Mercatele Val di Pesa svæðinu í Chianti Classico, en það eru bestu vínekrur Antinori-fyrirtækisins. Fallega rautt vín, þokkaleg dýpt en er ennþá með rönd æskunnar. Indæl angan af kirsuberjum með ögn af tóbaki og gott ef ekki bregður fyrir smá lakkrís. Góð fylling og eftirbragðið heldur sér ágætlega. Þolir nokkra geymslu en er þó ekki jafn sterkbyggt og fyrirrennarinn frá 1997. Gengur vel með íslenska lambinu og að sjálfsögðu ítölskum mat.

Einkunn: 8,0

Related posts:

  1. Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1997
  2. Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1998
  3. Villa Antinori Chianti Classico Riserva 1998
  4. Castello di Brolio Chianti Classico 1999
  5. Barone Ricasoli Chianti Classico Brolio 1997.

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: