Penfolds Bin 389 Cabernet Shiraz 2001

Höfundur: Eiríkur Þann 19. febrúar 2006

Fallega dökkt vín, góð dýpt og þroskinn er greinilega kominn af stað. Þykk angan af sólberjum, pipar og eik, ögn af lakkrís. Þykk og góð tannín, góð sýra og gott jafnvægi í víninu. Þokkalega langt og gott eftirbragð með vott af vanillu og eik ásamt góðu berjabragði. Vínið hlaut gullverðlaun í flokknum “Medium bodied dry red wines” á alþjóðlegu vínsýningunni í Sydney árið 2005.

Einkunn: 8,0

Related posts:

  1. Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 1996
  2. Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2000
  3. Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 1997
  4. Penfolds Kalimna Bin 28 Shiraz 1998
  5. Koonunga Hill Shiraz-Cabernet 1998

Leave a Comment

Previous post:

Next post: