Um Gullinbrú og fleira

Höfundur: Eiríkur Þann 20. febrúar 2008

Í síðustu viku var ég staddur í San Francisco í USA, skrapp á fund þar. Það var orðið ansi langt síðan ég var síðast þar vestra – nánar tiltekið rúm 17 ár! Auðvitað voru eingöngu “héraðsvín” á borðum, enda Napa Valley hinu megin við hólinn. Meðal annars prófaði ég ágætis Sauvignon Blanc frá Theira family, mjög litlum framleiðanda í Napa (aldrei heyrt af þeim áður og finn ekkert á netinu). Geyser Peak Cabernet Sauvignon komst einnig í glasið og svo einn Pinot Noir frá Napa, en því miður man ég ekki hvað framleiðandinn heitir (var búinn að vaka í rúmar sólarhring þegar ég smakkaði það).

Ég er á bakvakt um helgina þannig að það verður lítið nýtt prófað þá, en í næstu viku ætla ég að kíkja betur á Nýsjálenskan Pinot Noir frá Saint Clair, sem mér er sagt að sé góður. Meira um það síðar.

Related posts:

  1. Joseph Drouhin Laforet Pinot Noir 1997
  2. Torres Marimar Sonoma Russian River Valley Pinot Noir 2001
  3. Geyser Peak Alexander Valley Cabernet Sauvignon Reserve 1996
  4. Chateau Cantemerle Haut-Medoc 1994
  5. Fyrir næstu innkaupaferð

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: