Chateau Ste. Michelle Dry Riesling 2006

Höfundur: Eiríkur Þann 2. apríl 2008

Því miður er úrvalið af amerískum vínum frekar dapurt í vínbúðinni minni og nánast fáheyrt að komst yfir vín frá Washingtonfylki, en nú hefur verið hægt að fá þurran Riesling Chateau Ste. Michelle 2006, en sá framleiðandi hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Hér á ferðinni unglegt og skemmtilegt vín með angan af eplum, ferskjum og sítrus, í munni góður ávaxtakeimur með sömu eplum og ferskjum og komu í nefið. Þokkalegt eftirbragð sem þó mætti vera aðeins lengra. Gengur ágætlega með sushi. Góð kaup.

Related posts:

  1. Chateau Ste. Michelle Cabernet Sauvignon 1995
  2. Cloudy Bay Chardonnay 2006
  3. Immich-Anker Riesling Auslese 1997
  4. Joseph Drouhin Chablis Les Clos Grand Cru 1996
  5. Chateau Reynella Cabernet Merlot 1996

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: