Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997

Höfundur: Eiríkur Þann 2. júní 2008

Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina.  Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur – auðvitað kallar það á gott vín.

Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað.  Nokkuð einföld lykt – leður, pipar, sólber -  en reyndar ekki auðvelt að greina lyktina nánar þegar maður er úti.  Töluvert eftir af tannínum, sýran nokkuð farin að gefa eftir.  Góð fylling og þétt eftirbragð sem þó var heldur í styttri kantinum.  Smellpassaði við lambakjötið.  Góð kaup.  Ég myndi þó ekki geyma það mjög lengi í skápnum, a.m.k. ekki mikið lengur en 3-5 ár.

Related posts:

  1. Concha y Toro Cabernet Sauvignon Don Melchor 2004
  2. Carmen Maipo Valley Cabernet Sauvignon Gold Reserve 1997
  3. Robert Mondavi Napa Valley Cabernet Sauvignon 1997
  4. Miguel Torres Cabernet Sauvignon Curicó Manso de Velasco Reserve 1997
  5. Beringer Napa Valley Cabernet Sauvignon 1997

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: