Datt í lukkupottinn!

Höfundur: Eiríkur Þann 25. júlí 2008

Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn!

Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur.  Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót – en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint frábær.  Síðan var boðið upp á grillað lambainnanlæri og það var líka hreinasta sælgæti.  Rúsínan í pylsuendanum var þó auðvitað vínið sem boðið var upp á – Les Tourelles de Longueville 2002 og Joseph Phelps 1996!

Longueville var þrælgott þrátt fyrir að við hefðum drukkið það nokkuð kalt (nýtekið úr vínkælinum).  Phelpsinn hins vegar var magnaður – sólber, leður, vanilla og súkkulaði í nokkuð sætum ilmi, góð fylling, þétt og gott eftirbragð.  Orðið 12 ára gamalt en hefði sjálfsagt staðið af sér nokkur ár til viðbótar (ég hefði þó ekki lagt í mikið meira en 3-5 ár).

Frábært kvöld – takk fyrir okkur!

Related posts:

  1. Chateau Batailley
  2. Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997
  3. Chateau Pibran Pauillac 1997
  4. Beringer Napa Valley Cabernet Sauvignon 1996
  5. Guigal-veislan

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: