Uppskrift að góðu kvöldi

Höfundur: Eiríkur Þann 26. apríl 2009

Gærdagurinn var alveg yndislegur hér í Uppsala.  Sól og blíða, og yfir 20 stiga hiti.  Við ákváðum að halda pínulitla kosningavöku og buðum Keizarafjölskyldunni í mat.  Ég grillaði nautalund (marineruð í hvítlauk, timjan og pipar) og aspas og bar fram með salati, kartöflum og piparsósu.  Útkoman auðvitað frábær!  Með þessu drukkum við Chateau Antonic, sem er frá Médoc í Bordeaux.  Þetta er blanda Merlot, Cabernet Sauvignon og Petit Verdot.  Dökkrautt, enn nokkuð ung að sjá.  Seiðandi ilmur af nýju leðri, plómum, pipar og fjólum.  Kröftugt í munni, mikil fylling með löngu og þéttu eftirbragði.  Dásamlegt vín.

Chateau Antonic

Related posts:

  1. Chateau Margaux 1997
  2. Clos de Litanies Pomerol 2002
  3. Mmmm… “M”
  4. Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!
  5. Rosemount Estates Traditional 1999

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: