Sumarhátíðin

Höfundur: Eiríkur Þann 28. júní 2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, Bordeaux.  Þessi rómaði 2005-árgangur stendur svo sannarlega undir nafni, því hér er mjög gott vín á ferðinni þrátt fyrir að vera s.k. “litla vín” eða “annað vín” framleiðandans.  Það er dökkrautt, unglegt að sjá með góða dýpt.  Í nefið kemur góð fjósalykt ásamt leðri, pipar og franskri eik, vott af súkkulaði og berjum.  Í munni er vínið vel þétt í góðu jafnvægi, mikið af tannínum, langt og gott eftirbragð.  Vín sem á nóg eftir og ætti í raun ekki að opna fyrr en eftir nokkur ár.  Þeim sem eiga leið um fríhöfnina í Keflavík á næstunni er sterklega bent á að kippa þessu víni með sér, því það kostar ekki nema um 4.300 krónur sem er reyfaraverð fyrir þetta vín!

Á eftir opnuðum við svo eina Seghesio Zinfandel 2007, vín sem hefur verið í uppáhaldi hjá mér s.l. vetur – það  lenti í 10. sæti á árslista Wine Spectator, kostar ekki nema 170 SEK og fæst þar að auki í vínbúðinni minni!

Les Tourelles de Longueville

Related posts:

  1. Kvöldið góða
  2. Datt í lukkupottinn!
  3. Fyllt á vínskápinn
  4. Athuganir síðustu viku
  5. Casa Lapostolle

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: