Nautalund með madeirasósu og La Grola

Höfundur: Eiríkur Þann 11. september 2009

Við vorum frekar óákveðin hvað við ættum að hafa í kvöldmat nú í kvöld.  Við héldum því út í búð og komum heim með brasilíska nautalund sem við elduðum að hætti Sigga Gísla (sjá Landsliðsréttir Hagkópa) og gerðum madeirasósuna hans ásamt hefðbundnu meðlæti.  Þetta reyndist hreinasta lostæti og nú er maður nánast afvelta!  Með þessu drukkum við Allegrini La Grola 2005.  Þetta er Verónavín (tilheyrir reyndar Feneyjum), dökkt og fallegt í glasi, ennþá unglegt að sjá.  Í nefinu finnur maður kirsuber, plómur, leður og súkkulaði, ásamt örlitlum áfengiskeim.  Í munni örlítið tannískt, hæfileg sýra en eftirbragðið kannski aðeins í styttra lagi.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

Related posts:

  1. Allegrini La Grola 2005
  2. Kominn í frí!
  3. Allegrini
  4. Kreppuvín með kreppuboltanum
  5. Svínarif að hætti hússins

{ 1 comment… read it below or add one }

Keizarinn september 12, 2009 at 13:00

Takk fyrir að bjóða mér…………….

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: