2009 gott ár á Ítalíu?

by Eiríkur on 25. október 2009

Morgunblaðið greinir frá því í dag að árgangur 2009 á Ítalíu verði óvenju góður:

“Ítölsku vínþrúgurnar eru óvenju góðar í ár og er fastlega gert ráð fyrir því að árgangurinn 2009 verði góður en um leið verði framleiðslan lítil. Skýrist það af miklum hitum í sumar og miklu regni síðari hluta sumars.

Alls er talið að framleiðslan verði 44,5 hektólítrar, 4% minni heldur en spáð hafði verið. Í fyrra var framleiðslan 46,3 milljónir hektólítra.

Giuseppe Martelli, forseti samtaka ítalskra vínframleiðenda, segir að gæði vínsins séu einstaklega mikil í ár og þá sérstaklega í norður- og miðhluta landsins.”

Af www.mbl.is

Leave a Comment

Previous post:

Next post: