Í nýlegu Wine Spectator var listi yfir 500 vín sem ritstjórarnir telja vera mjög góð kaup. Ég kíkti aðeins á það hvað væri til í Vínbúðum ÁTVR og í sænska Systembolaget. Hér er stuttur listi yfir það sem fáanlegt er í verðflokknum ISK 2300-2800 /SEK 100-150 ($16-$20). Vín í þessum verðflokki þurftu að fá a.m.k. 90 punkta til að komast á listann. (B) þýðir að vínið þarf að sérpanta.
Rauðvín:
Peter Lehmann Shiraz Barossa 2006 – 91p – $16 – SEK 119 – ISK 2499
Yalumba Bush Vine Grenache 2008 – 90p – $17 – SEK 109
Chateau de Montfaucon Cotes du Rhone 2006 90p – ISK 2351
Trivento Malbec Golden Reserve 2007 – 90p – ISK 2799
Hvítvín:
Peter Lehmann Riesling Eden Valley 2008 – 90p – $16 – SEK 114 (B)
Fairview Viognier Paarl 2007 – 90p – $20 – SEK 145 (B)
Ég ætla að kíkja betur verðflokkana $13-$15, sem þurfti minnst 85 punkta til að komast á listann, $10-$12, sem þurfti minnst 83 punkta, og undir $10, sem þurfti minnst 80 punkta til að komast á listann. Athugið að þetta eru 500 vín sem ég þarf að fletta upp á tveimur heimasíðum, og það tekur smá tíma!
Related posts:


{ 6 comments… read them below or add one }
Sæll
Þá er bara að ganga skrefinu lengra og smakka það sem mælt er með. Skelli mér örugglega á morgun í ATVR og prófa Lehmann. Þetta er reyndar vín sem hefur ekki heillað mig áður.
Var eitthvað 100p vín? hvaða vín eru bestu kaupin skv. Wine Spectator?
Nei, engin 100p vín, enda aðeins um að ræða vín sem kosta 20 dollara eða minna. Hins vegar er Grange 2004 að fá 98 punkta og Clos des Papes Chateauneuf-du-Pape 2007 að fá 97, en þetta eru varla “budget-vín”…
Þessi Lehmann er nokkuð solid og góð kaup 2006-árgangnum frá honum. Cabernet-vínið er líka mjög gott.
Ég vil líka benda sérstaklega á Bodega Colomé Amalaya 2007 fyrir innan við 2000 krónur, 91 punktur (kemur í næsta pistli)
$20 ok. Svo sem ekki við 100p vínum að búast í þeim verðflokki.
Flottar ábendingar, hlakka til að smakka og koma með komment.
Finn ekki Peter Lehman Shiraz Barossa?
81336
Peter Lehmann Mentor
RÖDA VINER
2004
Australien
Flaska (750 ml)
314,00
84944
Peter Lehmann Seven Surveys Grenache Shiraz Mourvèdre
RÖDA VINER
2007
Australien
Flaska (750 ml)
118,00
87157
Peter Lehmann Stonewell Shiraz
RÖDA VINER
2002
Australien
Flaska (750 ml)
399,00
87776
Peter Lehmann Weighbridge Cabernet Sauvignon Merlot
RÖDA VINER
2007
Australien
Flaska (750 ml)
89,00
Einar!
Þú ert bara að skoða beställningssortimentet. Shirazinn (16381) er í venjulega sortimentinu og er til í nær öllum búðum á 119 SEK.