Innkaupalistinn

Höfundur: Eiríkur Þann 14. nóvember 2009

Hér er hann kominn – innkaupalistinn fyrir næstu ferð í Vínbúðina!  Ég reikna svo með að setja sænska listann inn fljótlega. Hugmyndin er að lesendur geti einfaldlega farið inn á Vínsíðuna og sótt sér nýjasta innkaupalistann hverju sinni, þ.e. ef ég næ að halda honum við.  Þess vegna eru líka allar ábendingar um góð kaup vel þegnar.  Listinn verður aðgengilegur hér til hægri á síðunni, fyrir neðan nýleg álit.

pdf

Related posts:

  1. Vandræði!
  2. Kominn á Facebook!
  3. Koonunga Hill Shiraz-Cabernet 1998

{ 4 comments… read them below or add one }

Hermann nóvember 14, 2009 at 11:52

Maður þarf ekki mikið að hafa fyrir þessu, bara prenta út og rölta út í ríki. Er að fara að prenta listann út, mun smakka eitt af þessum vínum í kvöld.
Annars var ég að drekka Faiveley Mercurey Clos des Myglands í vikunni. Mjög vel gert vín sem gaman var að drekka, kannski aðeins í dýrari kanntinum en engu að síður góð kaup að mínu mati.

Hugrún nóvember 14, 2009 at 21:09

Skelltum okkur í ríkið með innkaupalistann í vasanum. Náðum okkur í svo gott sem tvær flöskur. Amalaya de colomé og Rolling shiraz. Nú er bara að smakka. Tappinn kominn úr Amalaya og Hermann næstum því búin að hella öllu á gólfið í einhverju æðiskasti við að lesa utan á flöskuna…

Hermann nóvember 15, 2009 at 13:46

Varðandi Amalaya vínið. Þetta er ljómandi gott vín en það þarf góðan tíma. Víninu þarf að umhella a.m.k. 1 til 2 tímum áður en það er drukkið svo það nái að opnast. Án umhellingar er vínið nokkuð súrt sem hverfur alveg við umhellingu og smá bið.

Eiríkur nóvember 15, 2009 at 15:34

OK – takk fyrir ábendinguna. Bíð sjálfur spenntur að fá að smakka þetta vín þegar ég kem til Íslands um jólin.

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: