Gouais Blanc

Höfundur: Eiríkur Þann 18. desember 2009

Fyrir löngu síðan var þrúgan Gouais Blanc gerð útlæg í Frakklandi þar sem hún þótti of léleg.  Þrúgan hafði náð mikilli útbreiðslu á miðöldum þar sem hún þótti tiltölulega meðfærileg.  Vínin þóttu hins vegar ekki nógu góð og þrúgan því “bannlýst”.  Nú hefur hún þó fengið einhverja uppreisn æru því DNA-rannsóknir hafa sýnt að þrúgan er “móðir” fínni þrúga á borð við Chardonnay, Aligoté og Gamay, sem hafa orðið til við blöndun Pinot Noir og Gouais Blanc.

Í Oxford Companion to Wine er þrúgunni lýst sem ljósri þrúgu sem gefur af sér “mjög venjuleg, súr vín”.

Related posts:

  1. Chenin Blanc
  2. Sushi og …?
  3. Um Gullinbrú og fleira
  4. Vínin hans Obama
  5. Jólavínin

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: