Ítalskur ástrali eða ástralskur ítali?

Höfundur: Eiríkur Þann 5. febrúar 2010

Nú í vikunni kíkti Einar Brekkan við og færði mér eina flösku af Rosemount Sangiovese 2006.  Þetta vín er hálfgerður bastarður, en í góðri merkingu þess orðs.  Fyrir mér er sangiovese nánast eins ítalskt og hugsast getur, en Rosemount ekta “down under” ástrali.  Ég hefði þó alveg getað keypt þá fullyrðingu að þetta væri Chianti, því hér er virkilega gott vín á ferðinni.  Unglegt, létt að sjá.  Ilmur af fjólum, lakkrís og kryddi.  Létt og skemmilegt í munni, líður vel í gegn.  Smellpassar með ítölskum mat.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup (þarf að sérpanta).

Related posts:

  1. Rosemount Estate Chardonnay 1997
  2. Rosemount Estates Shiraz 1998
  3. Sumarfríið búið
  4. Wolf Blass President’s Selection Cabernet Sauvignon 1995
  5. Isole e Olena Cepparello 1996

{ 1 comment… read it below or add one }

Einar Brekkan febrúar 6, 2010 at 19:12

Hefur einhver séð svona flösku áður (Rosemount)?

Leave a Comment

*

Previous post:

Next post: