Kominn í frí!

by Eiríkur on 20. febrúar 2010

Já, nú er ég kominn í vikulangt frí, langþráð því að síðasta frí hjá mér fór eiginlega fyrir bí vegna veikinda.  Nú er ætlunin að slaka á í faðmi fjölskyldunnar – fara á skauta, moka snjó, fara í bíó með dæturnar, moka snjó, elda góðan mat og njóta góðra vína og síðast en ekki síst – moka meiri snjó!  Það er nefnilega allt á kafi í snjó hérna hjá mér, snjódýptin um hálfur metri og von á meira nú um helgina!  Ég held að ég haldi því áfram með svona slow-food tilraunir líkt og um síðustu helgi, ásamt því að elda hlýjan vetrarmat.  Vínkælarnir eru líka í mjög góðu ástandi og þar er ýmislegt sem hægt er að taka fram og dreypa á.

{ 2 comments… read them below or add one }

Óli 20. febrúar 2010 at 11:50

Hjúkk, hélt að þú hafir verið sendur í afvötnum !!!!!!!!

Eiríkur 21. febrúar 2010 at 16:07

Nei, sem betur fer er þetta ekki svo slæmt!

Leave a Comment

Previous post:

Next post: