Þá er ég búinn að prófa alla húsvínskandidatana og ég verð að segja að ég var nokkuð ánægður með öll vínin. Briccotondo hafði kannski fullmikið hrat í bragðinu en það hefur góðan karakter og er í góðu jafnvægi. Gott vín fyrir lítinn pening. Guðrún og nágrannarnir voru hins vegar hrifnari að Bolgarello sem var aðeins mýkra, með meiri ávöxt en einnig í góðu jafnvægi og vel samsett. Campo Viejo hefur kannski aðeins of mikla sýru en það er ekkert að skemma fyrir víninu, ekki of mikið eikarbragð og þokkalegt eftirbragð.
Niðurstaðan er því líklega sú að Poggio al Tesoro Bolgarello 2009 verður fyrir valinu sem fyrsta húsvínið okkar! (ég kannski tek líka nokkrar Campo Viejo með!)
Related posts:


{ 5 comments… read them below or add one }
Já, Campo viejo 2004 hefði verið betra en Clancys 2005 við þetta tækifæri með nautapiparsteikinni hjá Óla
Þú segir nokkuð! Clancy’s hefur yfirleitt verið nokkuð pottþétt vín en merkilegt nokk þá vantar einmitt 2005-árganginn á listann hjá Wine Spectator. Það tókst kannski ekki nógu vel upp með vínið það árið? Kannski verið betra með gamla góða Beringer, en hann er kannski ekki lengur fáanlegur?
Ég nappaði frá ölduðum föður mínum einni sem var orðin rykfallin og heitir Marques Casa Concha 2008 cabernet frá Concha Y Toro…-( ….Á ég ekki bara að gefa Óla hana?
Svo fékk ég í Vínbúðinni Beronia Rijoa 2008 Tempranillo, á víst að duga með nautinu í kvöld..
Beringerinn cabernet from Napa er ekki fáanlegur lengur hér því miður, færi á hausinn að fjárfesta í slíku..
Kær kveðja,
Þórður
ps. hlakka mjög til að klára Muga í kvöld (1.glas eftir) sem þú komst með í byrjun árs.
Eiríkur! Hvað á ég að gera við þennann Marques?
Á ég að geuma hann?
Gefa Óla hann?
Drekka hann með næstu nautasteik?
eða??????
Þú ferð nú ekki að gefa Óla þetta vín! Þetta er fyrirtaksvín frá Concha y Toro, 90 punkta vín – ef þú ætlar að láta Óla fá þetta vertu þá viss um að vera á staðnum þegar flaskan er opnuð!