Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Giftur!

July 23rd, 2008 No Comments

Við Guðrún gengum í það heilaga nú um helgina og ritstjórinn er því hættur að lifa í synd!  Við héldum veislu þar sem við buðum nánustu vinum og ættingjum og Páll Ólafsson frændi minn fór á kostum sem veislustjóri.  Hann þóttist vera eitthvað tvístígandi þegar við báðum hann um að taka þetta að sér, sagðist [...]

Tags:   · · · · · · · ·

Sælla að gefa en þiggja

July 11th, 2008 No Comments

Ég hef löngum verið aðdáandi ofurvínanna frá Toscana en því miður ekki prófað nógu mörg (verða þau nokkurn tíma nógu mörg?).  Helst er það að Tignanello hafi náð að komast í glasið mitt.  Í ferð minni í Kringluna um daginn rakst ég á Cepparello frá Isole e Olena, ofurtoskani úr hreinu Sangiovese.  Þetta er vín sem mig hefur [...]

Tags:   · · · · · · ·

Gyllta glasið!

October 27th, 2007 No Comments

Vínþjónasamtökin héldu uppskeruhátíð á Hilton Reykjavík Nordica um síðustu helgi og við það tækifæri voru ýmis verðlaun veitt.
Hvatningarverðlaun Vínjónasamtakanna voru veitt í fyrsta sinn og þau hlaut Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli fyrir að stuðla markvísst og ákveðið að aukinni vínmenningu á landinu.
Á Uppskeruhátíðinni var einnig tilkynnt um vínin sem fengu í ár Gyllta Glasið eftirsótta - [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Allegrini

July 14th, 2007 No Comments

Nú er Ítalíuferðinni lokið og í henni voru nokkur vín innbyrt, þó ansi misjöfn að gæðum. Mest var drukkið af vínum úr héraðinu Bardolino en bærinn Garda, þar sem við dvöldum, tilheyrir einmitt því héraði. Eftirminnilegust eru þó vínin frá Allegrini sem er einn af betri framleiðendunum á þessum slóðum. Allegrini-fjölskyldan hefur [...]

Tags:   · · · · · · · · · · ·

Jordan, mmm…!

June 21st, 2007 No Comments

Á morgun liggur leiðin til Ítalíu og við ákváðum að taka því rólega í kvöld, keyptum dálítið sushi til að borða sem kvöldsnakk og þá er ómissandi að fá sér hvítvín með. Fór því í systemið (sænska Ríkið) og rakst á Jordan Stellenbosch Chardonnay 2006. Ég hef aldrei smakkað það áður en hef [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · ·

Góð þrenna

February 26th, 2007 No Comments

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

M. Chapoutier Cote de Rhone Villages Valreas 2003

November 3rd, 2006 No Comments

Dálítið ljóst að sjá, unglegt, sæmileg dýpt. Rifsber, pipar og lakkrís í nefinu, dálítið sæt lykt. Fullmikil sýra og tannín, örlítill alkóhólkeimur, stutt eftirbragð. Þokkalegt vín á köldu vetrarkvöldi en ekkert eftirminnilegt að öðru leyti.
Einkunn: 6,0

Tags:   · · · · · · ·

Chateau Reynella McLaren Vale Basket Pressed Shiraz 2003

September 6th, 2006 No Comments

Gríðarlega mikið af sólberjum og vanillu í nefinu, mjög opið vín. Massíft þungt bragð með sólber, vanillu, myntu, lakkrís og eik. Þurrt og tannín mikið vín en hefur samt smá sætan sultu keim í bakgrunni. Eftirbragðið er langt og bragðmikið með fullt af pipar og vanillu.
Ekta gamaldags ástralskt Shiraz!! Massíft, bragðmikið og opið, vín sem [...]

Tags:   · · · · · ·