Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Montes Purple Angel 2005

June 7th, 2008 No Comments

Í vikunni pantaði ég rúmlega 10% af öllu því sem til er af fjólublá englinum hér í Svíþjóð (þó ekki allt fyrir sjálfan mig).  Í dag var alveg einstaklega gott veður, sól og tæplega 30 stiga hiti og því alveg tilvalið að grilla nautalund og opna góða rauðvínsflösku.  Ég hreinlega stóðst ekki mátið og opnaði [...]

Tags:   · · · · · · · · ·

Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997

June 2nd, 2008 No Comments

Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina.  Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur - auðvitað kallar það á gott vín.
Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað.  Nokkuð [...]

Tags:   · · · · · · ·

Að velja vín fyrir brúðkaup

May 22nd, 2008 No Comments

Það getur verið þrautin þyngri að velja vín fyrir brúðkaup! Ég stend nú í þessum sporum og er að leita að heppilegum vínum til að bera á borð fyrir gesti í fyrirhuguðu brúðkaupi okkar Guðrúnar nú í sumar. Ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér enda mikilvægt að vel takist til. Það [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!

May 20th, 2007 No Comments

Við fengum góða gesti um síðustu helgi þegar Hugrún og Hermann komu í heimsókn. Þau tóku með sér ýmislegt góðgæti og ég reyndi því að draga fram eitt og annað lítilræði úr skápnum mínum (sem því miður er mjög lítill, en ég hef augastað á 200-flösku Bosch-kæli).
Fyrsta kvöldið var fengum við okkur dálítið sushi [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Á leið í víking…

March 18th, 2007 No Comments

Það hefur verið heldur rólegt hjá ritstjóra Vínsíðunnar síðustu viku og lítið verið smakkað. Opnaði þó Concha y Toro Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon 2005 um helgina, einfalt og þægilegt vín fyrir venjulegt laugardagskvöld, passaði ágætlega með grillmatnum - já, ég er byrjaður að grilla! Ég hélt að vorið væri komið hér í [...]

Tags:   · · · · · ·

Concha y Toro Cabernet Sauvignon Don Melchor 2004

January 6th, 2007 No Comments

Ég ætlaði að ná mér í 2003 árganginn þar sem hann var svo ofarlega á lista WS yfir vín ársins 2006, en þegar ég sótti pöntunina mína fékk ég afhent 2004 árganginn.
Ég ákvað þó að slá til og varð síður en svo fyrir vonbrigðum!
Mjög dökkt, næstum því þykkt að sjá, þó unglegt. Örlítill eikarkeimur [...]

Tags:   · · · · · · ·

Carmen Maipo Valley Cabernet Sauvignon Reserve 2004

November 19th, 2006 No Comments

Opið í nefinu með sólberj, krydd, kanil og vanillu. Bragðmikið vín með skógarber, kanil, dökkt súkkulaði, eik, og vanillu bragði. Eftirbragðið er langt og gott. Frábært vín sem er tilbúið að drekka núna en verður ennþá betra eftir 2 ár. Þess má geta að þetta vín verður í boði sem eitt af hátíðarvínum Á.T.V.R. og [...]

Tags:   · · · · · ·

Concha y Toro Amelia Chardonnay 2001

November 19th, 2006 No Comments

Fallega gullinn litur, með vott af grænni slikju. Peruangan og ilmur af ristuðu brauði mætir manni í fyrstu. Frekari ávaxtatónar aðskiljast og minntu á þurrkaða banana og græn epli. Einnig var vottur af vanillu og kryddi sem kveiktu hugmyndir um saffran. Vín í gríðarlega góðu jafnvægi, meðalþurrt, vel smurt og áferðarmjúkt með þægilegu eftirbragði. [...]

Tags:   · · · · · · · · ·