Í gærkvöldi grillaði ég entrecote og með því drukkum við tvær flöskur frá sama framleiðanda, Chateau de Seguin. Fyrst drukkum við 2006 árganginn af því sem heitir einfaldlega Chateau de Seguin, unglegt með angan af eik og sólberjum, frísklegt en fyllingin heldur rýr. Þokkalegt vín fyrir 89 krónur sænskar. Síðan drukkum við Chateau de Seguin [...]
Ágætur frakki fyrir lítinn pening
August 16th, 2008 No Comments
Tags: 2005 · 2006 · Bordaux superieur · Chateau de Seguin · Cuvee Prestige · Frakkland · Grill · Nautakjöt · Rauðvín
Datt í lukkupottinn!
July 25th, 2008 No Comments
Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn!
Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur. Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót - en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint frábær. [...]
Tags: 1996 · 2002 · Bandaríkin · Bordeaux · Cabernet Sauvignon · Frakkland · Grill · Joseph Phelps · Lambakjöt · Les Tourelles de Longueville · Merlot · Napa · Pauillac · Rauðvín · Skötuselur
Fantagóður Pinotage
June 29th, 2008 No Comments
Það hefur verið frekar rólegt yfir Vínsíðunni síðustu vikur enda mikið að gera hjá ritstjóranum. Þursabit, pallasmíðar, skjólveggur, bakvakt og síðast en ekki síst - undirbúningur Íslandsferðarinnar. Vínsmökkun hefur því mátt víkja fyrir öðru en nú er kannski hægt að bæta úr því og fjalla meira um það sem landanum stendur til boða.
Hvað um það [...]
Tags: 2004 · 2005 · Grill · Kanonkop · Lamb · Pinotage · Rauðvín · Rosemount · Sancerre · Shiraz · Suður-Afríka
Montes Purple Angel 2005
June 7th, 2008 No Comments
Í vikunni pantaði ég rúmlega 10% af öllu því sem til er af fjólublá englinum hér í Svíþjóð (þó ekki allt fyrir sjálfan mig). Í dag var alveg einstaklega gott veður, sól og tæplega 30 stiga hiti og því alveg tilvalið að grilla nautalund og opna góða rauðvínsflösku. Ég hreinlega stóðst ekki mátið og opnaði [...]
Tags: Carmenere · Chile · Colchagua · Góð Kaup · Grill · Montes · Nautakjöt · Petit Verdot · Purple Angel · Rauðvín
Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997
June 2nd, 2008 No Comments
Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina. Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur - auðvitað kallar það á gott vín.
Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað. Nokkuð [...]
Tags: 1997 · Cabernet Sauvignon · Chile · Don Melchor · Góð Kaup · Grill · Lambakjöt · Rauðvín
Ennþá sambandslaus
March 27th, 2008 No Comments
Það virðist ekki vera nokkur lausn í sjónmáli í deilu TeliaSonera og Cogent Communications, en þessi fyrirtæki eiga í barnalegri deilu um samskipti á Netinu og talast nú ekki við. Það væri svo sem í lagi ef það þýddi ekki um leið að þau loka á öll samskipti notenda sinna við net sem andstæðingurinn [...]
Tags: 2004 · Côte du Rhone · Gran Coronas · Grill · Guigal · Hangikjöt · Kalkún · Rauðvín · Torres
Síðasti engillinn - meira Chianti?
June 17th, 2007 No Comments
Guðrún kom heim frá Íslandi í síðustu viku og tók með sér síðustu flöskuna af fjólubláa englinum í Fríhöfninni - kærkomin viðbót í vínkælinn minn! Annars hefur lítið verið drukkið af fínum veigum undanfarið, þrátt fyrir að ég hafi m.a. brugðið mér til Aþenu. Þó stendur til að gera á því bragarbót því [...]
Ágætt vín frá Argentínu
April 21st, 2007 1 Comment
Nágrannar okkar gáfu okkur argentískt vín þegar þau komu í grill um síðustu helgi - Santa Ana Reserve Shiraz-Malbec 2005. Vínið kemur frá Mendoza-dalnum í Argentínu og þetta er í fyrsta skipti sem ég smakka Shiraz-Malbec blöndu og hún er hreint ekki svo vitlaus!
Þetta er fallega rautt vín, þokkalega dökkt en þó ekki mikil [...]
Tags: 2005 · Add new tag · Argentína · Grill · Malbec · Rauðvín · Santa Ana · Shiraz
Á leið í víking…
March 18th, 2007 No Comments
Það hefur verið heldur rólegt hjá ritstjóra Vínsíðunnar síðustu viku og lítið verið smakkað. Opnaði þó Concha y Toro Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon 2005 um helgina, einfalt og þægilegt vín fyrir venjulegt laugardagskvöld, passaði ágætlega með grillmatnum - já, ég er byrjaður að grilla! Ég hélt að vorið væri komið hér í [...]
Tags: 2005 · Cabernet Sauvignon · Casillero del Diablo · Chile · Concha y Toro · Grill · Rauðvín
Corona de Aragón Reserva 2000
August 10th, 2006 No Comments
Skógaber, krydd og negull í nefinu. Papriku, sveppa, oregano krydd, sólberja og svört kirsuberja bragð. Ávaxtaríkt og langt eftirbragð.
Það er greinilegt að hægt er að finna gullmola út um allt á Spáni nú orðið. Það sem var svo skemmtilegt við þetta vín er að það er mjög ávaxtaríkt vín, sérstaklega með dökkum berjum frekar en [...]
Tags: 2000 · Cabernet Sauvignon · Cariñena · Corona de Aragon · Fuglakjöt · Garnacha · Grísakjöt · Grill · Kjúklingur · Rauðvín · Reseva · Smakkarinn.is · Svínakjöt · Tempranillo
