Ég var að leita á netinu hjá Systeminu fyrir helgi og sá þá, mér til mikillar ánægju, að hið frábæra hvítvín Riesling Auslese 2005 frá Markus Molitor var á tilboðsverði, aðeins rúmar 200 krónur sænskar. Ég pantaði mér auðvitað nokkrar flöskur í snarhasti og nú hvíla þær í vínskápnum mínum og bíða rétta augnabliksins.
Annars opnaði [...]
Markus Molitor
September 29th, 2008 No Comments
Tags: 2005 · Auslese · Ástralía · Þýskaland · Bin 28 · Hvítvín · Markus Molitor · Penfolds · Rauðvín · Riesling · Shiraz · Wehlener Sonnenuhr
Helgarferð til London
September 18th, 2008 No Comments
Við hjónin brugðum okkur til London um daginn - fyrsta skipti sem við förum eitthvað barnlaus. Keizarinn og frú fengu reyndar að fljóta með. Dinner og söngleikur, Covent Garden, Oxford Street og svo auðvitað vínbúðin í Selfridges!
Fyrsta kvöldið borðuðum við á Clos Maggiore, frönskum stað við Covent Garden. Staðurinn hefur viðurkenninguna Best of Award of [...]
Tags: 2002 · 2004 · 2006 · Ástralía · Bordeaux · Châteauneuf-du-Pape · Domaine Rene Monnier · Fois gras · Frakkland · Hvítvín · Keizarinn · Le Limozin · London · Mersault · Penfolds · Rauðvín · St. Henri
Ágætur frakki fyrir lítinn pening
August 16th, 2008 No Comments
Í gærkvöldi grillaði ég entrecote og með því drukkum við tvær flöskur frá sama framleiðanda, Chateau de Seguin. Fyrst drukkum við 2006 árganginn af því sem heitir einfaldlega Chateau de Seguin, unglegt með angan af eik og sólberjum, frísklegt en fyllingin heldur rýr. Þokkalegt vín fyrir 89 krónur sænskar. Síðan drukkum við Chateau de Seguin [...]
Tags: 2005 · 2006 · Bordaux superieur · Chateau de Seguin · Cuvee Prestige · Frakkland · Grill · Nautakjöt · Rauðvín
Fyllt á vínskápinn
August 4th, 2008 No Comments
Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala. Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) - Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]
Tags: 2004 · 2005 · Ástralía · Ítalía · Bandaríkin · Beringer · Bordeaux · Cabernet Sauvignon · Frakkland · GSM · Les Tourelles de Longueville · Napa · Pauillac · Private Reserve · Rauðvín · Rosemount · Tignanello · Toscana
Datt í lukkupottinn!
July 25th, 2008 No Comments
Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn!
Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur. Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót - en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint frábær. [...]
Tags: 1996 · 2002 · Bandaríkin · Bordeaux · Cabernet Sauvignon · Frakkland · Grill · Joseph Phelps · Lambakjöt · Les Tourelles de Longueville · Merlot · Napa · Pauillac · Rauðvín · Skötuselur
Giftur!
July 23rd, 2008 No Comments
Við Guðrún gengum í það heilaga nú um helgina og ritstjórinn er því hættur að lifa í synd! Við héldum veislu þar sem við buðum nánustu vinum og ættingjum og Páll Ólafsson frændi minn fór á kostum sem veislustjóri. Hann þóttist vera eitthvað tvístígandi þegar við báðum hann um að taka þetta að sér, sagðist [...]
Tags: 2003 · Ítalía · Brúðkaup · Cepparello · Gæs · Humar · Isole e Olena · Rauðvín · Villibráð
Sælla að gefa en þiggja
July 11th, 2008 No Comments
Ég hef löngum verið aðdáandi ofurvínanna frá Toscana en því miður ekki prófað nógu mörg (verða þau nokkurn tíma nógu mörg?). Helst er það að Tignanello hafi náð að komast í glasið mitt. Í ferð minni í Kringluna um daginn rakst ég á Cepparello frá Isole e Olena, ofurtoskani úr hreinu Sangiovese. Þetta er vín sem mig hefur [...]
Tags: 2003 · Ítalía · Cepparello · Isole e Olena · Rauðvín · Sangiovese · Tignanello · Toscana
Fantagóður Pinotage
June 29th, 2008 No Comments
Það hefur verið frekar rólegt yfir Vínsíðunni síðustu vikur enda mikið að gera hjá ritstjóranum. Þursabit, pallasmíðar, skjólveggur, bakvakt og síðast en ekki síst - undirbúningur Íslandsferðarinnar. Vínsmökkun hefur því mátt víkja fyrir öðru en nú er kannski hægt að bæta úr því og fjalla meira um það sem landanum stendur til boða.
Hvað um það [...]
Tags: 2004 · 2005 · Grill · Kanonkop · Lamb · Pinotage · Rauðvín · Rosemount · Sancerre · Shiraz · Suður-Afríka
Montes Purple Angel 2005
June 7th, 2008 No Comments
Í vikunni pantaði ég rúmlega 10% af öllu því sem til er af fjólublá englinum hér í Svíþjóð (þó ekki allt fyrir sjálfan mig). Í dag var alveg einstaklega gott veður, sól og tæplega 30 stiga hiti og því alveg tilvalið að grilla nautalund og opna góða rauðvínsflösku. Ég hreinlega stóðst ekki mátið og opnaði [...]
Tags: Carmenere · Chile · Colchagua · Góð Kaup · Grill · Montes · Nautakjöt · Petit Verdot · Purple Angel · Rauðvín
Meira um Búrgúndí
June 3rd, 2008 No Comments
Ég hef legið í bælinu undanfarna daga með þursabit og því haft aðeins meiri tíma en venjulega til að sjá um Vínsíðuna. Svo var ég svo heppinn í gær að Guðrún kom heim með nýjasta Wine Spectator þar sem er umfjöllun um Bourgogne. Ég verð að játa það að ég er enginn sérfræðingur [...]
Tags: ÁTVR · Bourgogne · d'Arenberg · Domaine Jean Grivot · Lucien Le Moine · Rauðvín · Umano Ronchi · Vín og matur · Vincent Girardin · Wine Spectator
