Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Fyrir næstu innkaupaferð

September 8th, 2007 No Comments

Það hefur verið fátt um fína drætti í mínum vínkaupum að undanförnu. Guðrún kom reyndar heim með Torres Mas La Plana og Penfolds Bin 407 í gær, sá síðarnefndi kærkominn gamall vínur sem ekki er fáanlegur hér í sænska systeminu. Mig dauðlangar þó að fara að panta mér eitthvað skemmtilegt og hef því [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · ·

Jean-Luc Colombo Cotes du Rhone Les Forots V.V. 1999

November 19th, 2006 No Comments

Auga: Meðal dýpt en fremur ljóst, skýjað. Byrjandi þroski.
Nef: Áberandi útihús eða fremur lykt af hrossunum sjálfum (þægilegt) skemmtilegur karakter og mjög lofandi lykt, hvítur pipar, blýantur og leður. Ávöxturinn leysist úr læðingi við þyrlun og minnir á brómber.
Munnur: Ágætis jafnvægi, tannískt með sýru til mótvægis. Áberandi krækiberjabragð í lokin. Helst til einsleitt.
Munnholið varð fyrir [...]

Tags:   · · · · · · · · ·

M. Chapoutier Cote de Rhone Villages Valreas 2003

November 3rd, 2006 No Comments

Dálítið ljóst að sjá, unglegt, sæmileg dýpt. Rifsber, pipar og lakkrís í nefinu, dálítið sæt lykt. Fullmikil sýra og tannín, örlítill alkóhólkeimur, stutt eftirbragð. Þokkalegt vín á köldu vetrarkvöldi en ekkert eftirminnilegt að öðru leyti.
Einkunn: 6,0

Tags:   · · · · · · ·