Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Markus Molitor

September 29th, 2008 No Comments

Ég var að leita á netinu hjá Systeminu fyrir helgi og sá þá, mér til mikillar ánægju, að hið frábæra hvítvín Riesling Auslese 2005 frá Markus Molitor var á tilboðsverði, aðeins rúmar 200 krónur sænskar.  Ég pantaði mér auðvitað nokkrar flöskur í snarhasti og nú hvíla þær í vínskápnum mínum og bíða rétta augnabliksins.
Annars opnaði [...]

Tags:   · · · · · · · · · · ·

Vídeósmakk?

June 3rd, 2008 No Comments

Ég leit inn á Smakkarinn.is í morgon og sá að Stefán mælir með áhugaverðu þýsku freyðivíni, Sander Riesling Trocken freyðivín 2005, sem víni mánaðarins í apríl 2008. Það er athyglisvert, ekki minnst fyrir þær sakir að Stefán segist almennt ekki vera hrifinn af þýskum freyðivínum (finnst þau meira að segja vond!).  Það sem mér [...]

Tags:   · · · · ·

Að velja vín fyrir brúðkaup

May 22nd, 2008 No Comments

Það getur verið þrautin þyngri að velja vín fyrir brúðkaup! Ég stend nú í þessum sporum og er að leita að heppilegum vínum til að bera á borð fyrir gesti í fyrirhuguðu brúðkaupi okkar Guðrúnar nú í sumar. Ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér enda mikilvægt að vel takist til. Það [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Chateau Ste. Michelle Dry Riesling 2006

April 2nd, 2008 No Comments

Því miður er úrvalið af amerískum vínum frekar dapurt í vínbúðinni minni og nánast fáheyrt að komst yfir vín frá Washingtonfylki, en nú hefur verið hægt að fá þurran Riesling Chateau Ste. Michelle, en sá framleiðandi hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Hér á ferðinni unglegt og skemmtilegt vín með angan af eplum, [...]

Tags:   · · · · ·

Vín ársins 2007

January 20th, 2008 No Comments

Ég hef nú ákveðið að vín ársins 2007 hjá Vínsíðunni sé hið stórkostlega Markus Molitor Wehlener Sonnenuhr Riesling Auslese** 2005 (sjá umsögn annars staðar á síðunni). Ég gaf víninu 9,5 í einkunn og það hlaut 97 stig hjá Wine Spectator. Það besta er svo að vínið kostaði ekki nema rúmar 250 krónur sænskar [...]

Tags:   · · · · ·

Topp 100

November 19th, 2007 No Comments

Þá er hann kominn, topp 100 listinn hjá Wine Spectator. Það kemur kannski ekki svo mikið á óvart að toppvínið er frá Châteauneuf-du-pape, nánar tiltekið Clos des Papes Châteauneuf-du-Pape 2005, 98 stiga vín fyrir 80 dollara (4000-4500 ef það fengist heima?). Reyndar er 2 af 3 efstu vínunum frá Châteauneuf-du-pape 2005 og [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · ·

Ohh, svo gott!

October 8th, 2007 1 Comment

Já, það er eiginlega besta lýsingin á hinu frábæra Markus Molitor Wehlener Sonnenuhr Riesling Auslese** 2005 sem ég opnaði nú í kvöld. Ég ætlaði eiginlega að halda upp á daginn í gær en af ýmsum ástæðum var flaskan ekki opnuð fyrr en í kvöld. Þetta er hreint út sagt æðislegt vín! Hnausþykkur [...]

Tags:   · · · · · · · · · ·

Riesling

September 15th, 2007 No Comments

Ég gleymdi alveg að nefna hinn frábæra 2005-árgang Riesling frá Þýskalandi. Hér er á ferðinni einn af allra bestu árgöngunum í manna minnum og sumir segja reyndar sá besti frá upphafi. Ég ætla a.m.k. að fara í Systemið á eftir og panta mér nokkrar flöskur. Ég fann nefnilega Markus Molitor Wehlener Sonnenuhr [...]

Tags:   · · · · · · · ·

Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!

May 20th, 2007 No Comments

Við fengum góða gesti um síðustu helgi þegar Hugrún og Hermann komu í heimsókn. Þau tóku með sér ýmislegt góðgæti og ég reyndi því að draga fram eitt og annað lítilræði úr skápnum mínum (sem því miður er mjög lítill, en ég hef augastað á 200-flösku Bosch-kæli).
Fyrsta kvöldið var fengum við okkur dálítið sushi [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Góð þrenna

February 26th, 2007 No Comments

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·