Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Athuganir síðustu viku

November 2nd, 2008 No Comments

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hittist heima hjá mér í vikunni og þemað var að allir komu með eitt vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbnum:
Keizarinn kom með Domaine Dominique Guyon Hautes Cotes de Nuits Les Dames de Vergy 2007.  Ljóst og kornungt Búrgúndarvín með krydduðum sólberja- og sítrónkeim ásamt útihúsakeim.  Tannínsnautt með frekar mikilli sýru, dálitlum sítrónukeim, [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Frábær kaup!

November 1st, 2008 No Comments

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hélt fund heima hjá mér í vikunni og prófaði nokkur vín.  Ber þar hæst vín sem ég bauð upp á: Bodegas Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005.
Þemað var að allir komu með vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbmeðlimum.  Ég var ekki viss um hvað ég ætti að taka og ákvað að fletta upp [...]

Tags:   · · · · · · · · ·

Gyllta glasið!

October 27th, 2007 No Comments

Vínþjónasamtökin héldu uppskeruhátíð á Hilton Reykjavík Nordica um síðustu helgi og við það tækifæri voru ýmis verðlaun veitt.
Hvatningarverðlaun Vínjónasamtakanna voru veitt í fyrsta sinn og þau hlaut Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli fyrir að stuðla markvísst og ákveðið að aukinni vínmenningu á landinu.
Á Uppskeruhátíðinni var einnig tilkynnt um vínin sem fengu í ár Gyllta Glasið eftirsótta - [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Hreindýr og Torres

October 21st, 2007 No Comments

Í gær elduðum við hreindýrasteik með skógarsveppasósu og rauðrófukartöflum. Með þessu drukkum við Torres Mas La Plana 2002 og það er óhætt að mæla með þessari tvennu. Nágrannar okkar Elín og Ásgeir voru í mat og voru nokkuð ánægð með það sem upp á var boðið. Við enduðum á því að opna [...]

Tags:   · · · · · · · · · · ·

Fyrir næstu innkaupaferð

September 8th, 2007 No Comments

Það hefur verið fátt um fína drætti í mínum vínkaupum að undanförnu. Guðrún kom reyndar heim með Torres Mas La Plana og Penfolds Bin 407 í gær, sá síðarnefndi kærkominn gamall vínur sem ekki er fáanlegur hér í sænska systeminu. Mig dauðlangar þó að fara að panta mér eitthvað skemmtilegt og hef því [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · ·

Marques de Arienzo Rioja Gran Reserva 1996

October 28th, 2006 No Comments

Dökkt og fallegt að sjá, góður þroski kominn í vínið. Þéttur sólberjailmur, góð eik og svei mér ef það örlar ekki á kirsuberjum inn á milli. Örlítill pipar. Dálítill áfengiskeimur, góður ávöxtur, sýran í jafnvægi en eftirbragðið nokkuð stutt.
Einkunn :7,0

Tags:   · · · · ·