Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Góð grein hjá Stefáni smakkara

September 9th, 2008 No Comments

Stefán Guðjónsson vínþjónn og ritstjóri smakkarinn.is er búinn að taka saman stutta lýsingu á helstu þrúgunum, bragði og eiginleikum þeirra en umfram allt tilgreinir hann hvaða matur hentar hvaða þrúgu.  Fín samantekt hjá Stefáni - kíkið á greinina hérna.

Tags:  

Vídeósmakk?

June 3rd, 2008 No Comments

Ég leit inn á Smakkarinn.is í morgon og sá að Stefán mælir með áhugaverðu þýsku freyðivíni, Sander Riesling Trocken freyðivín 2005, sem víni mánaðarins í apríl 2008. Það er athyglisvert, ekki minnst fyrir þær sakir að Stefán segist almennt ekki vera hrifinn af þýskum freyðivínum (finnst þau meira að segja vond!).  Það sem mér [...]

Tags:   · · · · ·

Torreon de Paredes Merlot Reserva Privada 2005

January 27th, 2007 No Comments

Cassis og dökkt súkkulaði i nefinu. Bragðmikið vín með mikið af sólberja, súkkulaði og vanillu bragði. Eftirbragðið er langt með góðu jafnvægi af sólberjum og tannín. Bragðgott vín sem er í mjög góðu jafnvægi. Rétt sleppur undir 2.000 kr. múrinn en er svo gott að ég gat ekki hunsað það. Tilbúið núna en verður [...]

Tags:   · · · ·

Le Dome St. Emilion 2001

December 19th, 2006 No Comments

Mikið kaffi, karamella og ristað brauð í nefinu. Silkimjúkt vín með kaffi, kanil, eik, sólberja og rista brauðs bragði. Eftirbragðið er mjög langt með mjúku tannín og mokka kaffi.
Þetta er ekta safnaravín, gott núna en ekki tilbúið fyrr en eftir 10 ár. Jólagjöfin til vínsafnara í ár!
Verð: 13.990

Tags:   · · · · · ·

Kollwentz Welschriesling Eiswein 2005

November 19th, 2006 No Comments

Hunang, mandarínur og apríkósur í nefinu. Apríkósur, mandarínu börkur, ferskjur og hunang í bragðinu, en þrátt fyrir sætleikan er þetta vín ótrúlega ferskt. Eftirbragðið er langt, bragðgott og ferskt.Þó að vínið sé hreint frábært núna, er hægt að geyma það í 7-10 ár í viðbót.
Verð: 3.455 kr. (37.5 cl. fl.) ath. þarf að sérpanta.
Einkunn: 8,0 [...]

Tags:   · · · · · · ·

Torres Marimar Sonoma Russian River Valley Pinot Noir 2001

November 13th, 2006 No Comments

Lýsing: Mjög opið vín með reyk, rifsberja og kirsuberja lykt. Tannínríkt vín með bragði af rifsberjum, eik, ristuðu brauði, og smá jarðaber í bakgrunni. Eftirbragðið er langt og tannínríkt.
Niðurstaða: Ég hef alltaf sagt að bestu bandarísku Pinot Noir vínin eru þau sem eru ekki að reyna að líkjast Búrgund heldur búa til sín eigin sérkenni. [...]

Tags:   · · · · · · · ·

Dinstlgut Loibner Schutt Gruner Veltliner 2004

August 10th, 2006 No Comments

Ferskt, ávaxtaríkt vín með perum og grænum pipar í nefinu. Krydd, grænn pipar, sítróna og greipaldin bragð. Eftirbragðið er langt og ferskt með smá keim af alkóhóli.
Gott austurískt vín þarf ekki að vera dýrt og Gruner Veltliner vínþrúgan passar mjög vel með ansi mörgum fisk réttum.
Einkunn. 8,0

Tags:   · · · · ·

Corona de Aragón Reserva 2000

August 10th, 2006 No Comments

Skógaber, krydd og negull í nefinu. Papriku, sveppa, oregano krydd, sólberja og svört kirsuberja bragð. Ávaxtaríkt og langt eftirbragð.
Það er greinilegt að hægt er að finna gullmola út um allt á Spáni nú orðið. Það sem var svo skemmtilegt við þetta vín er að það er mjög ávaxtaríkt vín, sérstaklega með dökkum berjum frekar en [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · ·