Vínsíða Eiríks Orra

Elsti íslenski vínvefurinn

Vínsíða Eiríks Orra header image 5

Super-Toscana

September 25th, 2008 No Comments

Toscana er eitt þekktasta vínsvæði Ítalíu og þar eru framleidd mörg stórkostleg vín.  Helstu vínhéruðin eru Chianti, Chianti Classico og Montalcino, og vínin eru síðan flokkuð samkvæmt gildandi reglum sem Denominazioni di origine controllata (DOC) eða Denominazioni di Origine Controllata e Garantita (DOCG).
Á áttunda áratug síðustu aldar hafði dregið talsvert úr sölu á Toscana-vínum og [...]

Tags:   · · · · · · · · ·

Fyllt á vínskápinn

August 4th, 2008 No Comments

Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala.  Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) - Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · · · ·

Sælla að gefa en þiggja

July 11th, 2008 No Comments

Ég hef löngum verið aðdáandi ofurvínanna frá Toscana en því miður ekki prófað nógu mörg (verða þau nokkurn tíma nógu mörg?).  Helst er það að Tignanello hafi náð að komast í glasið mitt.  Í ferð minni í Kringluna um daginn rakst ég á Cepparello frá Isole e Olena, ofurtoskani úr hreinu Sangiovese.  Þetta er vín sem mig hefur [...]

Tags:   · · · · · · ·

Tignanello ‘97

April 17th, 2008 No Comments

Við kíktum til Einars og Árdísar í gær og fengum að vanda höfðinglegar móttökur. Haldiði ekki að hann hafi verið búinn að taka upp Tignanello 1997 handa okkur! Einn allra besti Tignanelloinn síðan hann kom á markað. Djúpur og fallegur litur, kominn ágætur þroski í vínið. Leður, pipar og ávöxtur mest [...]

Tags:   · · · · ·

Topp 100

November 19th, 2007 No Comments

Þá er hann kominn, topp 100 listinn hjá Wine Spectator. Það kemur kannski ekki svo mikið á óvart að toppvínið er frá Châteauneuf-du-pape, nánar tiltekið Clos des Papes Châteauneuf-du-Pape 2005, 98 stiga vín fyrir 80 dollara (4000-4500 ef það fengist heima?). Reyndar er 2 af 3 efstu vínunum frá Châteauneuf-du-pape 2005 og [...]

Tags:   · · · · · · · · · · · · · · ·