From the category archives:

Matur og vín

Anelletti al Forno

11.22.2010

Í gær ætluðum við að eiga notalega kvöldstund og borða góðan en einfaldan mat.  Við ætluðum fyrst að gera lasagna en svo fann ég uppskrift að rétti sem heitir Anelletti al Forno, sem líkt og lasagna er ofnbakaður pastaréttur.  Rétturinn var einfaldur og tiltölulega fljótlegur í matreiðslu (eldunartíminn um 1½ klst).  Niðurstaðan var mjög góður [...]

Lesa meira →

Wellington fátæka mannsins?

11.14.2010

Á föstudaginn langaði okkur í góðan mat og gott vín, m.a. til að fagna því að Guðrún og sonurinn væru komin heim.  Ég fór í sund með dæturnar og maturinn varð því að vera einfaldur, hægt að útbúa fyrirfram eða hvoru tveggja.  Við gerðum því Beef Wellington með nautahakki í stað nautalundar, nokkurs konar Wellington [...]

Lesa meira →

Úr tilraunaeldhúsinu

10.30.2010

Mig hafði lengi langað í gasbrennara, m.a. til þess að geta búið til Creme Brulée.  Ég varð því mjög ánægður þegar Guðrún gaf mér einn slíkan um daginn.  Það var þó fyrst í dag að ég keypti gas í brennarann og því ekki seinna vænna að skella í Creme Brulée!  Ég varð eiginlega hálf hissa [...]

Lesa meira →

Boom Boom Shiraz

10.19.2010

Í gær fór ég með vinnufélögunum út að borða á veitingastaðnum Jay Foo hér í Uppsölum.  Þetta er nokkuð nýtískulegur staður sem býður upp á mat í fusion-stíl, skemmtilega innréttaður og sennilega sá staður í Uppsölum sem býður matargestum upp á besta útsýnið.  Vínlistinn þeirra er líka nokkuð sérstakur.  Hann er ekki langur, blanda af [...]

Lesa meira →

Lúxusvandamál

09.13.2010

Ég á við ákveðið lúxusvandamál að stríða um þessar mundir.  Ég fór á laugardaginn ásamt Keizaranum og sótti pöntunina okkar.  Við (aðallega ég) urðum þó fyrir smá áfalli þegar heim var komið, því Brancaia Tre sem við pöntuðum reyndist vera annar árgangur en sá sem við pöntuðum – 2008 en ekki 2007!  Nú reyndust góð [...]

Lesa meira →

Liseberg og tvö frábær vín!

08.19.2010

Já, loksins komumst við í Liseberg! Dæturnar völdu nefnilega Liseberg sem sumarleyfisstaðinn í ár og tóku hann fram yfir sólarlandaferð eða annað þvíumlíkt. Við fórum reyndar til Íslands í 3 vikur en það er víst ekki hægt að kalla það sólarlandaferð þrátt fyrir að veðrið hafi verið með ágætum. Við ætluðum svo að fara í [...]

Lesa meira →

Gúrkutíð

08.03.2010

Það hefur verið hálfgerð gúrkutíð hjá mér að undanförnu og lítið um vínprófanir frá því að engillinn góði var tekinn upp.  Ég var að vinna í Falun alla síðustu viku þar sem ég smakkaði reyndar eitt gott rauðvín.  Ég fékk mér glas af Gnarly Head Zinfandel 2008 og það var bara skrambi gott.  Gott berjabragð [...]

Lesa meira →

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

07.16.2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn [...]

Lesa meira →

Ítalskt kvöld

04.09.2010

Á morgun er ítalskt kvöld, nánar tiltekið Toscana-kvöld.  Við ætlum að hittast nokkrir vinnufélagar, elda saman góðan mat og drekka góð vín.  Við ætlum að elda Toscana-mat (a.m.k. ítalskan mat) og drekka Toscana-vín.  Einar Brekkan sér um stærstan hluta matseðilsins en ég kem með forrétt og ætla að gera humar- og villisvepparéttinn sem ég gerði [...]

Lesa meira →

Í Stokkhólmi

03.29.2010

Tengdó eru í heimsókn hjá okkur um þessar mundir og við gripum tækifærið að hafa barnapössun! Um helgina brugðum við undir okkur betri fætinum og skruppum til Stokkhólms að hitta Hugrúnu og Hermann sem voru þar stödd í helgarferð.  Við röltum um gamla bæinn og brugðum okkur inn á veitingahúsið Mårten Trotzig þar sem við [...]

Lesa meira →