Posts tagged as:

Þýskaland

Góð þrenna

02.26.2007

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við fyllt lambalæri og [...]

Lesa meira →

Ekkert ísvín í ár?

01.10.2007

Óvenjuhlýir vetrarmánuðir stefna nú ísvínsframleiðslunni í hættu. Sumir framleiðendur, s.s. Robert Weil í Rheingau, hafa lýst því yfir að þeir muni ekki framleiða ísvín (Eiswein) í ár þar sem of hlýtt sé í veðri. Til að hægt sé að framleiða ísvín verður hitastigið að fara niður í -7 °C en nú er spáð allt að [...]

Lesa meira →

Weinkellerei St. Peter Paradise Garden 2000

09.01.2001

Þetta er vín frá Nahe-svæðinu í Þýskalandi. Flaskan er, líkt og aðrar frá St. Peter Weinkelleri, nokkuð frábrugðin því sem við eigum að venjast þegar merkingar eru annars vegar og þær skera sig nokkuð úr fjöldanum vegna þessa. Vínið er ljósleitt, unglegt. Nokkuð dæmigerð Riesling-lykt, epli, sítrusávextir, vægur eikarkeimur. Hálfþurrt vín, svalandi og skemmtilegt, með [...]

Lesa meira →

Trimbach Gewürztraminer Reserve 1998

01.01.2001

Auga: Fallega gullið vín með mikla dýpt og þykka tauma. Nef: Græn epli, pera og engifer. Munnur; Ávaxtaríkt og kryddað, með keim af eðalmyglu. Langt og mjúkt eftirbragð. Matur: Fjölhæft vín, prófa kínverskt eða indverskt

Lesa meira →

Fritz Haag Brauneberger Juffer Riesling Kabinett 1997

01.01.2001

Nær litlaust vín, örlítil kolsýra. Í nefinu strokleður, kattarhland, sviti og tár, hjartarsalt (ath. lyktin er ekki vond þrátt fyrir þessi lýsingarorð!!!). Í munni er þetta dæmigerður riesling, ferskt með vott af perum og guarana. Hentar vel sem fordrykkur, jafnvel með snittum eða salati. Einkunn: 5,0

Lesa meira →

Immich-Anker Riesling Auslese 1997

01.01.2001

Fölgult, tært en dálítil kolsýra. Angan af perum, hunangi, smjöri og hnetum – góður ilmur en vottar jafnvel fyrir brennisteini. Vínið er í góðu jafnvægi, nokkuð sætt, vel smurt með hunangskeim. Einkunn: 7,0

Lesa meira →

Pierre Frick Gewurztraminer 1992

01.01.2001

Gul slikja utan á víninu. Í nefinu pera, mikið krydd og mikill ávöxtur, jafnvel púðurreykur! Nokkuð kröftugt kryddbragð, jafnvel aggressíft í munni. Í góðu jafnvægi við ávöxtinn. Eftirbragðið mjúkt og gott. Vín sem hentar með feitum fiski, t.d. laxi, lúðu eða bara eitt og sér.

Lesa meira →