by Eiríkur on 12. janúar 2009
Á laugardaginn opnuðum við Coto de Imaz Gran Reserva 1996, sem ég fékk á sínum tíma frá Keizaranum. Líkt og önnur Riojavín er þetta hreint Tempranillo og eins og reglurnar kveða á um Gran Reserva þá var vínið 2 ár í tunnum og 3 ár á flösku áður en það var sett í sölu.
Vínið er nokkuð dökkt að sjá, góð dýpt. Góður ávaxtailmur ásamt svörtum pipar, tóbaki, eik (ameríska eikin með smá brenndum keim) og ögn af leðri. Mjúkt og fínt í munni, tannínin hafa tekið sig vel og fyllingin nokkuð þétt. Gott og nokkuð langt eftirbragð. Góð kaup (góð gjöf!). Passar vel með nauti og grilluðum mat.

by Eiríkur on 25. júlí 2008
Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn!
Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur. Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót – en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint frábær. Síðan var boðið upp á grillað lambainnanlæri og það var líka hreinasta sælgæti. Rúsínan í pylsuendanum var þó auðvitað vínið sem boðið var upp á – Les Tourelles de Longueville 2002 og Joseph Phelps 1996!
Longueville var þrælgott þrátt fyrir að við hefðum drukkið það nokkuð kalt (nýtekið úr vínkælinum). Phelpsinn hins vegar var magnaður – sólber, leður, vanilla og súkkulaði í nokkuð sætum ilmi, góð fylling, þétt og gott eftirbragð. Orðið 12 ára gamalt en hefði sjálfsagt staðið af sér nokkur ár til viðbótar (ég hefði þó ekki lagt í mikið meira en 3-5 ár).
Frábært kvöld – takk fyrir okkur!