Posts tagged as:

1997

Vín á tímum stjórnarkreppu

Höfundur: Eiríkur Þann 26. janúar 2009

Þegar stjórnir falla á umbrotatímum er mikilvægt að setjast niður og íhuga málin vel og vandlega.  Við slíkar íhuganir er mikilvægt að réttur vökvi sé við hönd.  Hver vökvinn svo á að vera fer auðvitað eftir því hvaða hug menn bera til tíðindanna.

Þeir sem syrgja stjórnina ættu að taka sér púrtvínsglas í hönd.  Púrtvínið styrkir sálina og eykur vellíðan og á því þurfum við einmitt að halda núna.  Vínsíðan mælir með Fonseca Vintage Port 1997.  Það er þétt og sætt með góða fyllingu, mikinn berjamassa og öflug en samt silkimjúk tannín.  Langt og gott eftirbragð sem dreifir huganum og áhyggjur hverfa eins og dögg fyrir sólu!

Þeir sem vilja gleðjast opna að sjálfsögðu kampavín og þá dugir fátt annað en Bollinger Brut Special Cuvée.  Kampavín njósnara og fyrirmann en einnig alls almennings.  Góð fylling, þurrt og ferskt með breiðan ilm, kakó, sítrusávöxt , epli og ferskjur.

{ 0 comments }

Jólavínin

Höfundur: Eiríkur Þann 31. desember 2008

Í ár brugðum við út af venjunni með jólamatinn okkar.  Við vorum orðin þreytt á þungum og reyktum jólamatnum og vildum prófa eitthvað annað.  Niðurstaðan varð kalkúni sem lagður var í kryddaðan saltpækil og tókst alveg frábærlega vel.  Forrétturinn var risahörpuskel með balsamvinaigrette að hætti Gutta.  Mamma og pabbi hafa verið hjá okkur yfir jólin og þau komu með Rosemount Show Reserve Chardonnay 2006 og Don Melchor Cabernet Sauvignon Private Reserve 1997.  Þetta drukkum við með jólamatnum og það féll í góðan jarðveg.  Chardonnayið silkimjúkt með sítrus- og eikarkeim og fínni smjöráferð.  Don Melchor einnig pottþéttur – dökkur og seiðandi ilmur af leðri, pipar og berjum, góð fylling, þétt áferð með löngu og góðu eftirbragði. Einar Brekkan renndi við hjá ykkur fyrir jól og færði mér eina Casa Lapostolle Cuvee Alexander Pinot Noir 2005.  Með hangikjötinu á jóladag drukkum við svo eina Dr. Loosen Riesling Spätlese 2006.

Áramótauppgjörið er framundan- bestu kaup ársins, vonbrigði ársins og að sjálfsögðu vín ársins!

{ 0 comments }

Góðir gestir

11.12.2008

Hulda og Steini frá Karlskrona komu í heimsókn til okkar eftir að hafa verið nokkra daga í Stokkhólmi.  Steini er mikill vínáhugamaður og á öfundsvert vínsafn.  Hann segist hafa fengið vínáhuga í kringum 1999 og þá fyrst farið að safna ítölskum vínum frá 1997.  Hann á nokkuð vænt safn af þessum frábæra árgangi og tók [...]

Lesa meira →

Don Melchor Cabernet Sauvignon 1997

06.02.2008

Ég ákvað að það væri kominn tími á þessa flösku (þó hún hafi ekki verið nema nokkrar vikur í vínskápnum) nú um helgina.  Guðrún búin að fá stöðuhækkun, frábært veður (sól og 25 stig), grillað lambakjöt og góður félagsskapur – auðvitað kallar það á gott vín. Fallega dökkt vín með góða dýpt, orðið nokkuð þroskað.  [...]

Lesa meira →

Góð þrenna

02.26.2007

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við fyllt lambalæri og [...]

Lesa meira →

Tenuta San Leonardo Vallagarina 1997

11.19.2006

Auga: Dökkt og heillandi vín með mikilli dýpt. Brún rönd. Nef: Það sem er mest áberandi í lyktinni er kúmen sem við höfum ekki fundið áður við vínsmökkun, einnig fannst myntulykt og brenni. Sætur ilmur losnaði við þyrlun sem minntu okkur helst á döðlur. Vottur af lakkrís og marsipani. Þétt lykt með sætum keim, mjög [...]

Lesa meira →

Les Tourelles de Longueville Pauillac 1997

07.30.2006

Auga: Ryðrautt, talsverð dýpt, tært og tiltölulega ljóst. Nef: Mjög skemmtileg og margslungin lykt, áberandi leður, reykur, brennd viðarkol, sæt kirsuber og marsipan, trufflur og kaffi. Munnur: Fíngert, fágað í munni en þó mikið eftirbragð. Skemmtilegur karakter og áberandi reyktur ostur. Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Lindemans Botrytis Riesling 1997

02.04.2006

Gullið og þykkt, fallegir taumar. Ilmandi hunang, græn epli og perur, sveskjur?. Hnausþykkt og kröftugt bragð, hunang og epli, langt og gott eftirbragð. Passar vel við súkkulaðiköku og ávaxtarétti. Einkunn: 7,0

Lesa meira →

Rosemount Estates GSM 1997

04.02.2002

Þetta vín var árshátíðarvín Vínklúbbsins árið 2002 GSM stendur fyrir Grenache, Shiraz og Mourvedre, en þessi blanda er nokkuð vinsæl í Suður-Rhone í Frakklandi. Hér er hún í hlutföllunum 50% Grenache, 40% Shiraz og 10% Mourvedre. Þrúgurnar í þessu víni koma frá McLaren Vale, sem er eitt besta vínræktarsvæðið í Ástralíu og þaðan koma mörg [...]

Lesa meira →

Robert Mondavi Napa Valley Cabernet Sauvignon Unfiltered 1997

10.01.2001

Auga: Miðlungs dýpt, góður þroski, rauðbrún rönd. Nef: Fremur lokuð þrátt fyrir umhellingu, eik, leður, aðalbláber, kaffi. Munnur: Silkimjúkt, mikil fylling og langt og frábært eftirbragð. Einkunn: 9,0

Lesa meira →