Posts tagged as:

1998

Wynn’s Coonawarra Michael Shiraz 1998

by Eiríkur on 30. júlí 2006

Mjög dökkt vín, fallega dumbrautt, góður byrjandi þroski, langir taumar. Plómur, tóbak, súkkulaði, vanilla, útihús og meira að segja bananar læðast inn um nasirnar! Vínið hefur góða fyllingu, gott jafnvægi, lakkrískeimur í annars svolítið stuttu eftirbragði.

Einkunn: 9,0

Umsögn Vínklúbbsins

{ 0 comments }

Joseph Drouhin Charmes-Chambertin Grand Cru 1998

by Eiríkur on 30. júlí 2006

Ljósasta rauðvín sem klúbburinn hefur séð, mikil og falleg dýpt, góður þroski. Í nefi eik, brómber og blómailmur (rósir), vottur af kattahlandi. Flauelsmjúkt, fínlegt og fágað bragð (ballerina), stórkostlegt eftirbragð.

Einkunn: 9,0

{ 0 comments }

Penfolds Bin 707 Cabernet Sauvignon 1998

07.30.2006

Mjög dökkt vín, afar mikil dýpt, góður þroski, miklir taumar (“long legs”). Óvenjumikil mynta í nefinu, súkkulaði, kaffi, sólber, eik og leður. Vel kryddað í munni, langt og þétt eftirbragð með góðum kaffikeim.
Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Pasqua Piuatti Collio Pinot Blanco 1998

02.13.2006

Fölgult og vatnsleitt að sjá. Hnetur, greipaldin og eik nokkuð sterk í nefi en einnig vottar fyrir hunangi og jafnvel smá súrheyi. Í munninn kemur fram gott hunangsbragð, dálítið eikað vín og nokkuð feitt í munni. Gott jafnvægi. Gæti passað vel við feitan og jafnvel reyktan fisk.
Einkunn: 7,0

Lesa meira →

E&J Gallo Laguna Ranch Chardonnay 1998

02.04.2006

Frekar djúpt, góður gulur litur, fallegir taumar, þykkt.  Sveppur, smörlykt, moldarkeimur.  Í munni apríkósur, smjör, góð fylling, gott jafnvægi, þurrt.
Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Lindemans Bin 50 Shiraz 1998

01.12.2003

Þetta vín, sem er blandað úr berjum af stóru svæði, á sér rúmlega 40 ára sögu. Vinsældir þess má að miklu leyti rekja til þess hve stöðugt það hefur verið milli ára, þannig að neytendur hafa getað gengið að gæðunum vísum. Þetta vín er gott dæmi um Bin 50-stílinn frá Lindemans. Það endurspeglar góða blöndu [...]

Lesa meira →

Rosemount Estate Semillon 1998

06.01.2001

Vín mánaðarins í júní 2000 er Semillon árg. 1998 úr Diamond-línunni frá Rosemount Estate í Ástralíu.
Semillon-þrúgan hefur fram til þessa einkum verið notuð til íblöndunar við aðrar ljósar þrúgur og notuð jafnt í þurr hvítvín sem í sæt eftirréttavín. Ásamt Chardonnay er hún ein helsta ljósa þrúgan í Hunter Valley, sem er í Nýja Suður-Wales [...]

Lesa meira →

Chateau Reynella McLaren Vale Shiraz 1998

03.30.2001

Ég smakkaði þetta vín í lok mars 2001 og var hæstánægður með það. Það er dökkt, sýnir góð dýpt, er ungt en þroski þó kominn vel af stað. Í nefið kemur dýrindis ilmur af leðri, amerískri eik, plómum, pipar, ögn af sólberjum, lakkrís, anís, tóbaki, súkkulaði og mokka. Góð tannín, sýra rétt yfir meðallagi, gott [...]

Lesa meira →

Villa Antinori Chianti Classico Riserva 1998

02.01.2001

Fallegur litur, góð dýpt, smá taumar og byrjandi þroski. Í nefi möndlur, kirsuber, útihús og leður. Tannín, ekki mikið jafnvægi, þægilegt vín, ekta Ítali.
Umsögn Vínklúbbsins

Lesa meira →

Trimbach Gewürztraminer Reserve 1998

01.01.2001

Auga: Fallega gullið vín með mikla dýpt og þykka tauma.
Nef: Græn epli, pera og engifer.
Munnur; Ávaxtaríkt og kryddað, með keim af eðalmyglu. Langt og mjúkt eftirbragð.
Matur: Fjölhæft vín, prófa kínverskt eða indverskt

Lesa meira →