Posts tagged as:

2001

Vonbrigði ársins

by Eiríkur on 31. desember 2008

Vonbrigði ársins eru án efa Chateau Musar 2001. Ég hafði lesið mikið um þetta vín og hafði miklar væntingar til þess þegar ég loksins fékk að smakka það. Vonbrigðin voru mikil. Ég átti von á allt öðru víni, þéttu og kröftugu víni en ekki sviplausu og bragðdaufu lúpínuseyði. Kannski var flaskan léleg…

Hvað um það – þetta eru vonbrigði ársins!

{ 0 comments }

Miðlungskvöld

by Eiríkur on 4. desember 2008

Já, það er eiginlega hægt að segja að vínsmökkunin heima hjá Dr. Leifssyni hafi verið miðlungskvöld hvað varðar vínin sem smökkuð voru, því þar var fátt sem stóð upp úr.  Partíið sem fylgdi á eftir var hins vegar ágætt!

Fyrst prófuðum við Beringer Old Vine Zinfandel 2005.  Ljósleitt og ungt vín með angan af lakkrís, pipar, myntu og súkkulaði.  Sýran yfir meðallagi, skortir nokkuð tannín en þó með þokkalega fyllingu og sæmilegt eftirbragð.  Sæmilegt vín fyrir 100 SEK.

Því næst fengum við okkur Michel Picard Chassagne-Montrachet 2006.  Einnig ljóst og unglegt að sjá, dæmigert pinot-útlit.  Dálítil sveitalykt (útihús) ásamt sólberjum og hvítum pipar.  Góð tannín, góð sýra og gott jafnvægi.  Dálítið jarðvegsbragð og vínið hefur eflaust gott af 3-4 árum til viðbótar í flöskunni.  Kostar um 200 SEK og allt í lagi að prófa það síðar.

Að lokum opnuðum við Chateau Musar 2001.  Einhverra hluta vegna hef ég alltaf rennt hýru auga til þessa víns, enda heyrt mikið látið með það – perluna fyrir botni Miðjarðarhafs.  Vonbrigðin voru eftir því.  Ég átti einhverra hluta vegna von á allt öðru vísi víni en ljósleitu og hálf fölu víni með hrossaskít og reiðtygi í lyktinni.  Samt sem áður gott jafnvægi en hálf undarlegur berjakeimur í eftirbragðinu (rifsber?) féll mér ekki alveg í geð.  Kostar 250 SEK og verður ekki sjáanlegt í mínum vínkælum á næstunni!

Um helgina ætla ég að prófa Seghesio Zinfandel 2006.  2007-árgangurinn af þessu víni lenti í 10. sæti á topp-100 lista Wine Spectator og ég geri því ráð fyrir að 2006 sé líka allt í lagi.

{ 0 comments }

Hreindýr og Torres

10.21.2007

Í gær elduðum við hreindýrasteik með skógarsveppasósu og rauðrófukartöflum. Með þessu drukkum við Torres Mas La Plana 2002 og það er óhætt að mæla með þessari tvennu. Nágrannar okkar Elín og Ásgeir voru í mat og voru nokkuð ánægð með það sem upp á var boðið. Við enduðum á því að opna [...]

Lesa meira →

Chateau Batailley

10.06.2007

Það var orðið nokkuð langt síðan ég smakkaði Chateau Batailley síðast og varð því ánægður er ég sá að það voru til nokkrar flöskur í vínbúðinni minni. Verðið var hagkvæmt (299 SEK – tæplega 3 þúsund kall) og ég sló því til! Í gær opnaði ég eina flöskuna og ég veit ekki enn [...]

Lesa meira →

Um athuganir síðustu vikna

08.10.2007

Já, þó svo að lítið hafi gerst hér á síðunni sl. 3-4 vikur þá hefur eitt og annað vín verið prófað. Tengdó komu í heimsókn og tóku með sér 2 flöskur af Chateau Cantenac Brown 2001 sem er alveg afskaplega gott vín! Sólberin, piparinn og eikin duga vel til að æra bragðlaukana sem [...]

Lesa meira →

Le Dome St. Emilion 2001

12.19.2006

Mikið kaffi, karamella og ristað brauð í nefinu. Silkimjúkt vín með kaffi, kanil, eik, sólberja og rista brauðs bragði. Eftirbragðið er mjög langt með mjúku tannín og mokka kaffi.
Þetta er ekta safnaravín, gott núna en ekki tilbúið fyrr en eftir 10 ár. Jólagjöfin til vínsafnara í ár!
Verð: 13.990

Lesa meira →

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 2001

11.19.2006

Fallegt vín, dökkt og dýpt í meðallagi. Fjólublá rönd Ilmur af kirsuberjum, hvítum pipar og kaffi. Vanillukeimur og hiti. Þétt og góð lykt. Gott jafnvægi í munni, tannískt en með sýru sem kemur vel á móti. Gott matarvín með góðri fyllingu.
Einkunn: 8,0
Umsögn Vínklúbbsins

Lesa meira →

Concha y Toro Amelia Chardonnay 2001

11.19.2006

Fallega gullinn litur, með vott af grænni slikju. Peruangan og ilmur af ristuðu brauði mætir manni í fyrstu. Frekari ávaxtatónar aðskiljast og minntu á þurrkaða banana og græn epli. Einnig var vottur af vanillu og kryddi sem kveiktu hugmyndir um saffran. Vín í gríðarlega góðu jafnvægi, meðalþurrt, vel smurt og áferðarmjúkt með þægilegu eftirbragði. [...]

Lesa meira →

Torres Marimar Sonoma Russian River Valley Pinot Noir 2001

11.13.2006

Lýsing: Mjög opið vín með reyk, rifsberja og kirsuberja lykt. Tannínríkt vín með bragði af rifsberjum, eik, ristuðu brauði, og smá jarðaber í bakgrunni. Eftirbragðið er langt og tannínríkt.
Niðurstaða: Ég hef alltaf sagt að bestu bandarísku Pinot Noir vínin eru þau sem eru ekki að reyna að líkjast Búrgund heldur búa til sín eigin sérkenni. [...]

Lesa meira →

Firriato Santagostino Baglio Soria 2001

07.30.2006

Fallegur liur, ágæt dýpt en aðeins skýjað að sjá og fremur unglegt. Lakkrís og vel þroskaðar plómur koma fram áður en víninu er þyrlað. Plómurnar magnast við þyrlun en einnig er lykt af vanillu og brenndri karamellu. Þægileg og sérstök lykt. Talsvert tannín og meðal fylling. Kryddað og kröftugt vín með skemmtilegan karakter. Ágætt eftirbragð [...]

Lesa meira →