Posts tagged as:

2004

Hryggur og Beringer

by Eiríkur on 3. október 2009

Ég er að fara til Falun í næstu viku og verð því að kúldrast á hóteli eina vikuna enn.  Ég á líka afmæli í næstu viku og við ákváðum að halda smá forveislu í kvöld.  Okkur langar í góðan mat og gott vín!  Ég er því búinn að setja lambahrygg í ofninn og taka fram Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004.  Það eru um 10 ár síðan ég smakkaði þetta vín síðast og því kominn tími á að endurnýja kynnin.  Þetta vín fær 93 punkta hjá Wine Spectator og er búið að fá að liggja smá tíma í vínkælinum mínum.  Eftirvæntingin er því töluverð…

Meira um það síðar!

{ 0 comments }

Sumarfríið búið

by Eiríkur on 21. júlí 2009

Já, þá er sumarfríið búið – allt of fljótt, fannst mér!  Í síðustu viku fórum við í sumarhús í Orsa ásamt Keizaranum og fjölskyldu hans.  Ég hafði ákveðið að taka eina góða rauðvínsflösku með mér og opna fyrsta kvöldið.  Fyrir valin varð Penfolds St. Henri Shiraz 2004, sem ég keypti í London í fyrra.  Það verður að segjast eins og er að það var eiginlega ekki mjög gott val hjá mér, því vínið var alls ekki tilbúið.  Það var fallegt að sjá, dökkrautt og unglegt.  Lyktin var nokkuð lokuð – tóbak, leður og lakkrís en ekki mikið annað.  Í munni var vínið mjög tannískt og einnig mikil sýra á ferðinni (jaðraði við að vínið væri súrt), kröftugt vín með þokkalegu eftirbragði.  Við ákváðum því að láta vínið standa nokkra stund í glösunum og við það batnaði vínið til muna, mýktist upp og fékk meiri þokka.  Vínið þarf því að bíða nokkur ár til viðbótar, 5-10 ár a.m.k., áður en það fer að njóta sín.

Annars drukkum við helst Periquita, portúgalskt kassavín sem sænska þjóðin virðist elska, og svo góðkunningja okkar hann Ramos, kassavín frá Spáni.  Ég tók líka með einn kassa af Foot of Africa Chenin Blanc 2008 og var bara nokkuð ánægður með hann.  Þetta er ljósleitt hvítvín, daufur ilmur af sítrus og blómum.  Þægilegt bragð, smá sítruskeimur með miðlungs fyllingu.  Nokkuð góð kaup (kostar aðeins 169 SEK)

{ 0 comments }

Smakkarinn.is velur vín ársins

01.14.2009

Stefán Guðjónsson á smakkarinn.is er einn af helstu vínsérfræðingum Íslands og hann hefur tilnefnt vín ársins 2008 – Chateau Lagrange 2004:

Þá er komið að besta víninu sem ég smakkaði árið 2008! Vínið kemur frá einu besta ef ekki besta og þekktasta  vínræktar svæði heims, Bordeaux. Þeir sem þekkja mig vita að ég [...]

Lesa meira →

Mmmm… “M”

01.10.2009

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er [...]

Lesa meira →

Kaup ársins

12.31.2008

Þegar kemur að því að velja bestu kaup ársins eru mörg vín sem koma til greina.
Bodegas Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005 er magnað Riojavín sem kostar aðeins 70 sænskar krónur.  Því miður ekki fáanlegt á Íslandi en engu að ein bestu kaup ársins.

Guigal Côtes du Rhone 2004 er alltaf pottþét að eiga og gengur vel [...]

Lesa meira →

Athuganir síðustu viku

11.02.2008

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hittist heima hjá mér í vikunni og þemað var að allir komu með eitt vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbnum:
Keizarinn kom með Domaine Dominique Guyon Hautes Cotes de Nuits Les Dames de Vergy 2007.  Ljóst og kornungt Búrgúndarvín með krydduðum sólberja- og sítrónkeim ásamt útihúsakeim.  Tannínsnautt með frekar mikilli sýru, dálitlum sítrónukeim, [...]

Lesa meira →

Helgarferð til London

09.18.2008

Við hjónin brugðum okkur til London um daginn – fyrsta skipti sem við förum eitthvað barnlaus.  Keizarinn og frú fengu reyndar að fljóta með.  Dinner og söngleikur, Covent Garden, Oxford Street og svo auðvitað vínbúðin í Selfridges!
Fyrsta kvöldið borðuðum við á Clos Maggiore, frönskum stað við Covent Garden.  Staðurinn hefur viðurkenninguna Best of Award of [...]

Lesa meira →

Fyllt á vínskápinn

08.04.2008

Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala.  Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) – Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]

Lesa meira →

Fantagóður Pinotage

06.29.2008

Það hefur verið frekar rólegt yfir Vínsíðunni síðustu vikur enda mikið að gera hjá ritstjóranum.  Þursabit, pallasmíðar, skjólveggur, bakvakt og síðast en ekki síst – undirbúningur Íslandsferðarinnar.  Vínsmökkun hefur því mátt víkja fyrir öðru en nú er kannski hægt að bæta úr því og fjalla meira um það sem landanum stendur til boða.
Hvað um það [...]

Lesa meira →

Ennþá sambandslaus

03.27.2008

Það virðist ekki vera nokkur lausn í sjónmáli í deilu TeliaSonera og Cogent Communications, en þessi fyrirtæki eiga í barnalegri deilu um samskipti á Netinu og talast nú ekki við. Það væri svo sem í lagi ef það þýddi ekki um leið að þau loka á öll samskipti notenda sinna við net sem andstæðingurinn [...]

Lesa meira →