Posts tagged as:

2005

Engillinn og steikin

Höfundur: Eiríkur Þann 24. júlí 2010

Jæja, þá er síðasta sumarfrísvikan á enda (í bili, fæ eina viku til viðbótar í ágúst).  Við ætluðum að vera í Gautaborg þessa viku en þar sem bíllinn bilaði varð lítið úr því.  Við skelltum okkur því til Stokkhólms í staðinn og fórum í Gröna Lund, sem er tívolíið í Stokkhólmi.  Smáfólkið var nokkuð ánægt með þá ferð, þó það hafi verið pínulítil vonbrigði að fá ekki að gista í tjaldi (reyndar er Gothia Cup í Gautaborg þessa viku og því ekki víst að það hafi verið mikið pláss eftir á tjaldstæðum í Gautaborg).

Við fullorðna fólkið vildum líka fá smá sárabót og ákváðum því að grilla og taka gott vín út úr kælinum.  Útkoman varð grilluð Entrecote og með því drukkum við Montes Purple Angel 2004.  Þetta er hreint út sagt frábært vín, aðeins farið að þroskast, með hnausþykkri angan af kirsuberjum og dökku súkkulaði, ásamt ögn af amerískri eik og pipar.  Í munninn fær maður nóg af mjúkum tannínum, sama súkkulaði- og kirsuberjakeim, mikil fylling og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Keizarinn, sem var í mat ásamt fjölskyldu sinni, kom með Chateau de Caraguiles 2005 (vona að ég stafi þetta rétt), sem er frá Corbier í Frakklandi.  Það stóð sig furðu vel á eftir englinum, mjúkur berjakeimur og þægileg tannín ásamt þokkalegu eftirbragði.  Einkunn: 7,5.

Engillinn stóð vel undir væntingum og ég bíð spenntur eftir 2007-árgangnum sem bíður í kælinum mínum…

{ 0 comments }

Á Íslandi

Höfundur: Eiríkur Þann 26. júní 2010

Þessa dagana er ég staddur í fríi á Íslandi ásamt dætrum mínum og Guðrún er væntanleg í vikulokin.  Við fórum í dag og kíktum á gamlar drossíur, en Fornbílaklúbbur Íslands er með landsmót á Selfossi (þar sem foreldrar mínir búa).  Þar sáum við bæði glæsivagna og gamla skrjóða í misgóðu ástandi.

Pabbi grillaði gómsæta nautasteik og með henni drukkum við Les Tourelles des Longueville Pauillac 2005.  Ákaflega gott vín, unglegt með frísklega berjakeim þar sem einnig má finna angan af eik, leðri og tóbaki.  Rífandi tannín og sýra í góðu jafnvægi gefa góð fyrirheit um framtíðina, en þetta vín á nokkuð í land með að ná fullum þroska og væri best að geyma í a.m.k. 3-4 ár til viðbótar.  Engu að síður ljúffengt nú þegar – Einkunn: 9,0 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Í Stokkhólmi

03.29.2010

Tengdó eru í heimsókn hjá okkur um þessar mundir og við gripum tækifærið að hafa barnapössun! Um helgina brugðum við undir okkur betri fætinum og skruppum til Stokkhólms að hitta Hugrúnu og Hermann sem voru þar stödd í helgarferð.  Við röltum um gamla bæinn og brugðum okkur inn á veitingahúsið Mårten Trotzig þar sem við [...]

Lesa meira →

Lamb og rauðvín

02.27.2010

Í gær eldaði ég lambalæri, kryddað með hvítlauk og rósmarín, og bar fram með ofnsteiktu rótargrænmeti. Uppskriftina er að finna í Gestgjafanum, nánar tiltekið í blaðinu þar sem er að finna bestu uppskriftir ársins 2009. Með þessu drukkum við Les Tourelles de Longueville Pauillac 2005. Þetta er “litla” vínið frá Chateau de Longueville en samt [...]

Lesa meira →

Sushi, afmæli og heimsóknir

01.31.2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2009

11.20.2009

Þá er það ljóst – vín ársins 2009 hjá tímaritinu Wine Spectator er Columbia Crest Columbia Valley Cabernet Sauvignon Reserve 2005!  Þetta er tiltölulega ódýrt vín frá “venjulegum” bandarískum framleiðanda, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir góð vín á góðu verði.  Hann hefur ekki verið að gera neina “blockbusters” hingað til en kannski verður [...]

Lesa meira →

Nautalund með madeirasósu og La Grola

09.11.2009

Við vorum frekar óákveðin hvað við ættum að hafa í kvöldmat nú í kvöld.  Við héldum því út í búð og komum heim með brasilíska nautalund sem við elduðum að hætti Sigga Gísla (sjá Landsliðsréttir Hagkópa) og gerðum madeirasósuna hans ásamt hefðbundnu meðlæti.  Þetta reyndist hreinasta lostæti og nú er maður nánast afvelta!  Með þessu [...]

Lesa meira →

Torres og nautið

08.30.2009

Í gær buðum við nokkrum nágrönnum í grill – eitthvað sem lengi hefur staðið til en ekki orðið af fyrr en nú.  Við grilluðum rauðvínsmarineraða nautasteik og með því bárum við fram kartöflugratín, salat og villisveppasósu.  Krakkarnir fengu grillaða hamborgara og voru alsælir með það.  Með nautinu drukkum við Torres Gran Coronas Reserva 2005.  Þetta [...]

Lesa meira →

Ein fyrir framtíðina

08.28.2009

Loksins er þessari Falun-törn lokið í bili – 3 vikur af síðustu 4 hef ég kúldrast uppi á kvistherbergi (les. hótelherbergi) og látið mér leiðast.  Nú er því lokið í bili, næsta ferð er ekki fyrr en í Október.  Við fórum að versla í dag og ég kíkti í vínbúðina mína og sá þá ýmislegt [...]

Lesa meira →

Kominn í frí!

08.16.2009

Já, nú er ég kominn í vikulangt frí sem er kærkomið eftir útlegð undanfarinna vikna.  Ég hélt upp á fríið með því að grilla nautalund og bjó til bernaise-sósu (engin pakkasósa heldur alveg frá grunni).  Með þessu drukkum við Antinori Badia A Passignano Chianti Classico 2005.  Ég keypti þetta vín í fríhöfninni og það kostaði [...]

Lesa meira →