Höfundur: Eiríkur Þann 25. september 2011
Þessa helgi hafði ég hugsað mér að vera í Berlín að hlaupa maraþon en hnémeiðsli í vor komu í veg fyrir það. Þess í stað fór Guðrún til Stokkhólms í kvennahlaup og ég ákvað að elda góðan mat handa henni.
Í gær eldaði ég reyndar lambakórónu með kryddjurtahjúp (uppskrift frá meistara Gutta) sem tókst einstaklega vel. Hingað til hef ég þeirrar skoðunar að sænskt lambakjöt standi því íslenska langt að baki hvað varðar bragðgæði en ég hef nú loks fundið sænskt lambakjöt sem mér líkar við – marinerað lambakjöt frá Anderson & Tillman (kjötvinnsla hér í Uppsölum). Ég skolaði þó marineringuna af og kryddaði kjötið samkvæmt uppskriftinni hans Gutta og útkoman var hreint stórkostleg! Með þess drukkum við Campogiovanni Brunello di Montalcino 2006 – stórkostlegt vín sem fékk 96 punkta í Wine Spectator. Dásamlegur ilmur af fjólum, sólberjum og leðri ásamt pipar og vott af eik. Í munni var vínið í fyrstu frekar stíft og tannínin eiga töluvert eftir áður en þau mýkjast almennilega. Líklega hefur vínið gott af því að fá að liggja 3-5 ár til viðbótar í kælinum. Það fær samt góða einkunn frá mér – 9,0 – Bestu meðmæli!
Nú er ég að elda Boeuf a la Mode að hætti Juliu Child, með því hef ég carrottes étuvées au beurre og pommes de terre sautées, og í eftirrétt hef ég Créme Brûlée…
Höfundur: Eiríkur Þann 21. júlí 2011
Ég var að fá í hús 3 flöskur af Campogiovanni Brunello di Montalcino 2006 – stórkostlegt vín sem Wine Spectator gefur 96 punkta, og það kostar aðeins 299 sænskar krónur. Vínið þarf helst smá tíma í viðbót til að toppa en mig dauðlangar samt að smakka – vonandi stenst ég freistinguna um helgina og bíð þangað til ég kem heim eftir Íslandsferðina (ég flýg til Íslands á sunnudaginn). Ég smellti mér líka á eintak af nýjasta Decanter, en þar er smá úttekt á Barolo 2006. Ég renndi aðeins yfir það sem til er í sænsku vínbúðunum og sá að eftirfarandi vín eru fáanleg og gætu verið góð kaup:
- Andrea Oberto Vigneto Albarella Barolo 2006 – 399 SEK/fl. (92198), 18,7/20 stig
- Andrea Oberto Barolo 2006 – 359 SEK/fl (71555), 17,5/20 stig
- Andrea Oberto Rocche Barolo 2006 – 499 SEK /fl (90306), 17,5/20 stig
- Ciabot Berton Roggeri Barolo 2006 – 189 SEK/fl (920962), 17,5/20 stig
- Ello Grasso Gavarini Chiniera Barolo 2006 – 519 SEK/fl (92149), 17/20 stig
- Luciano Sandrone Le Vigne Barolo 2006 – 759 SEK/fl (71065), 16,83/20 stig
Í vínbúðum ÁTVR fæst aðeins eitt Barolo 2006:
- Villadoria Sori Lazzarito Barolo 2006 – 3.998 kr/fl, 16,5/20 stig
Það eru reyndar til einhver 2005 en það var langt í frá jafn góður árgangur og 2006. Á vef ÁTVR má líka sjá Pio Cesare Barolo Ornato 2004 á tæpar 10 þúsund krónur en þar er sko alvöru vín á ferðinni og alveg þess virði að splæsa í eina slíka!