Posts tagged as:

2007

Púrtvín og ostar

Höfundur: Eiríkur Þann 18. desember 2011

Hingað til hef ég ekki verið þekktur fyrir að vera mikið fyrir osta, en það er allt að breytast til hins betra.  Um daginn drakk ég Chateau Mont Redon 2007 sem Einar Brekkan bauð upp á, og með þessu borðuðum við svissneskan Appenzeller sem passaði ákaflega vel með (Einar var líka með Gorgonzola sem ég er ekki enn búinn að falla fyrir).

Á föstudaginn fann ég flösku af gömlu árgangspúrtvíni í vínbúðinni minni, nánar tiltekið Fonseca Guimaraens Vintage Port 1995.  Þetta vín hlaut 92 stig hjá Wine Spectator og var í 9. sæti á topp-100 listanum árið 1998!  Það var því aldeilis kominn tími á að prófa árgangspúrtvín sem hefur fengið að þroskast vel og lengi.  Ég veit hins vegar ekki alveg við hvaða aðstæður þetta vín hefur verið geymt því þegar ég opnaði flöskuna fór tappinn í mola og a.m.k. þriðjungurinn fór ofan í flöskuna í mylsnuformi!  Nú voru góð ráð dýr.  Það er jú mjög óspennandi að fá mikinn kork í glasið og þetta var of fín mylsna til að hægt væri að losna við hana með því að hella í gegnum sigti.  Ég tók mig til og skvetti úr flöskunni í vaskinn þannig að korkurinn fór úr en sáralítið af víninu fylgdi með.  Síðan gátum við notið vínsins með Appenzeller og Gruyere og útkoman var mjög góð!  Vínið var silkimjúkt með mikla fyllingu, góður keimur af plómum, berjum og lakkrís.  Einkunn: 9,0 – Bestu meðmæli

{ 0 comments }

Hitabylgja

Höfundur: Eiríkur Þann 4. júní 2011

Það er sannkölluð hitabylgja sem gengur yfir Uppsala þessa dagana.  Þegar þetta er skrifað er klukkan hálf níu að morgni og hitinn er þegar kominn yfir 20 gráður!  Í gær var þvílík rjómablíða - sól, hægur andvari og 25 stiga hiti, sem er bara nokkuð gott í byrjun júní.  Við sátum úti á palli stærstan hluta úr deginum, drukkum hvítvín og bjór og grilluðum svo fyrirtaks nautasteik.  Með henni drukkum við Lous M. Martini Cabernet Sauvignon 2007, fyrirtaks amerískur Cabernet sem hentaði vel með grillinu.  Smá leður og sólber, eik og tóbak í annars einföldum ilm, vínið hæfilega tannískt í munni og ágætis eftirbragð.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup.

Það er mikið um að vera í dag – sextugsafmæli Einars Brekkans og svo grill hér um kvöldið þegar Gestur og Soffía koma í sína fyrstu heimsókn til Uppsala (nýflutt til Stokkhólms frá Kaupmannahöfn).  Stefnir í meira nautakjöt og eitthvað vel valið vín úr kælinum…

{ 0 comments }

Árshátíðin

06.02.2011

Vínklúbburinn Reinhardt hélt fyrstu árshátíð sína um síðustu helgi.  Þemað var ítalskt – bæði matur og vín.  Í forrétt gerðum við Carpaccio og með því drukkum við Stefano Antonucci Verdicchio Classico Riserva 2007.  Það var nokkuð sérstakt vín og í fyrsta sinn (að ég held) sem við prófuðum vín úr þessari þrúgu.  Vínið er gyllt [...]

Lesa meira →

Nýir húsvínskandidatar

04.02.2011

Leitin að húsvíninu heldur áfram!  Málið snýst um að finna gott vín á góðu verði, en samt eitthvað sem maður verður ekki strax leiður á.  Í morgun skrapp ég í vínbúðina mína og kom heim með 3 kandidata. Campo Viejo Crianza Rioja 2007 (72 SEK) – Fær 86 punkta hjá Wine Spectator, sem verður að [...]

Lesa meira →

Delas Les Launes

03.31.2011

Í nýjasta Insider-hefti Wine Spectator er fjallað um nokkur ný og spennandi vín.  Áhugaverðast finnst mér að Delas Crozes-Hermitages Les Launes 2009 fær 91 stig.  Þetta vín fæst bæði á Íslandi og í Svíþjóð og kostar ekki mikið.  Hér í Svíþjóð kostar flaskan 139 SEK en á Íslandi 3370 kr.  Reyndar er það 2007-árgangurinn sem [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2010 á Vínsíðunni

01.08.2011

Undanfarin ár hef ég haft þann vana að tilnefna vín ársins hér á Vínsíðunni.  Árið 2010 var nokkuð gott ár þegar vín eru annars vegar – nóg af góðum vínum á góðu verði!  Ég náði að tjá mig um 35 mismunandi vín (listinn verður birtur á næstu dögum) og var yfirleitt nokkuð ánægður með það [...]

Lesa meira →

Ítalska veislan

12.01.2010

Við héldum ítalskt kvöld um helgina og buðum Keizaranum í mat ásamt fjölskyldu.  Við fengum okkur Bollinger Special Cuvée í fordrykk – einstaklega gott kampavín með ljúfum sítrus- og hnetukeim. Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Aðalrétturinn var Farsumagru – fyllt nautasteik frá Sikiley – sem tókst einstaklega vel.  Ég gerði líka ítalskt kartöflugratín sem var [...]

Lesa meira →

Pöntunin

11.02.2010

Systembolaget bætti nokkrum nýjum tegundum í úrvalið í gær, en hér er þó um tímabundnar nýjungar að ræða – vín sem eru til í takmörkuðu magni og aðeins seld í ákveðnum búðum.  Sum þeirra er seld í rúmlega 30 búðum í Svíþjóð (2 í Uppsölum, þó ekki búðin mín), en svo eru nokkur sem eru [...]

Lesa meira →

Lúxusvandamál

09.13.2010

Ég á við ákveðið lúxusvandamál að stríða um þessar mundir.  Ég fór á laugardaginn ásamt Keizaranum og sótti pöntunina okkar.  Við (aðallega ég) urðum þó fyrir smá áfalli þegar heim var komið, því Brancaia Tre sem við pöntuðum reyndist vera annar árgangur en sá sem við pöntuðum – 2008 en ekki 2007!  Nú reyndust góð [...]

Lesa meira →

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

07.16.2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn [...]

Lesa meira →