Posts tagged as:

Alsace

Alsace

by Eiríkur on 16. janúar 2010

Árið 2007 var einstaklega gott í hinu franska Alsace, líkt og nánast allur síðasti áratugur, og árgangurinn einn sá besti í tæp 20 ár.  Vínframleiðendur höfðu þó áhyggjur um vorið, því það var eitt hið heitasta og þurrasta i áraraðir.  Hlýindin héldu áfram um sumarið, en með hæfilegri úrkomu svo að vaxtarskilyrði voru eins og best verður á kosið.  Haustið bar einnig með sér hagstæð skilyrði og kom í veg fyrir að þrúgurnar þroskuðust of hratt eða of mikið.  Botrytis cinerea (eðalmyglusveppurinn) fékk einnig hagstæðar aðstæður í lok september og niðurstaða ársins 2007 voru því mjög góð vín, hvort sem um er að ræða þurr eða sætvín.

Helstu þrúgurnar í Alsace eru Riesling, Gewürztraminer, Pinot Gris og Muscat, en Pinot Blanc, Pinot Auxerrois og Sylvaner eru einnig ræktaðar í töluverðu magni.  Flest vínin eru einnar þrúgu vín (single-variety), en blöndur koma þó einnig fyrir.  Þá eru einnig framleidd freyðvín sem nefnast crémant.

Í Alsace eru 51 vínekra sem flokkast undir Grand Cru og á vínum þaðan stendur “Appellation Alsace Grand Cru Contrôlée” á flöskumiðanum, ásamt nafni vínekrunnar og stundum bæjarnafninu.  Önnur vín flokkast sem “Appellation Alsace Contrôlée.”  Þau eru oft blöndur frá nokkrum vínekrum og bæjum og hafa stundum sérstök cuvée-heiti.  Sum eru þó frá tilteknum vínekrum (þó ekki Grand Cru) og bera þá oft heiti bæjarins á flöskumiðanum.

Flest Alsace-vín eru þurr, en margir framleiðendur búa oft til sætari vín, sem þá kallast Vendange Tardive (sein uppskera eða late harvest) eða Sélection de Grains Noble (útvaldar eðalþrúgur, sætvín). Þessi vín koma yfirleitt ári á eftir þurru vínunum á markað. VT-vínin geta verið allt frá hálf-sæt til sæt, en SGN eru alltaf sæt.

Við stutta leit á heimasíðu ÁTVR sá ég að eftirfarandi Alsace-vín eru meðal annarra fáanleg í vínbúðum ÁTVR:

Trimbach Pinot Gris Reserve 2005 (89 punktar) – 2.922 krónur
Willm Gewurztraminer Reserve 2008 (84  punktar) – 2.690 krónur
Willm Riesling Reserve 2008 (87 punktar) – 2.390 krónur

Við svipaða leit í systembolaget sá ég þar fást m.a. eftirfarandi vín:

Trimbach Riesling 2007 (nr 2639) (91 punktur) - 115 SEK
Riesling Hugel 2007 (nr 12191) (87 punktar) - 129 SEK
Dopff & Irion Riesling 2007 (nr 2173) (88 punktar) - 84 SEK
Gustave Lorentz Riesling Réserve 2008 (nr 22257) (84 punktar) -  89 SEK
Gustave Lorentz Gewurztraminer Réserve 2008 (nr 5244) (87 punktar) - 89 SEK

Þá fást m.a. eftirfarandi vín á pöntunarlistanum:

Domaine Ostertag Riesling Vignobles d’E 2007 (nr 73188) (90 punktar)-  149 SEK
Schlumberger Pinot Gris Les Princes Abbés 2007 (nr 86860) (90 punktar) - 139 SEK

Að lokum fylgir hér árgangstafla Wine Spectator fyrir Alsace:

Árgangur Einkunn Drekka/Geyma
2007
95
Drekka/Geyma
2006
89
Drekka
2005
94
Drekka/Geyma
2004
92
Drekka/Geyma
2003
88
Drekka/Geyma
2002
92
Drekka/Geyma
2001
94
Drekka/Geyma
2000
93
Drekka/Geyma

{ 0 comments }

Gyllta glasið!

by Eiríkur on 27. október 2007

Vínþjónasamtökin héldu uppskeruhátíð á Hilton Reykjavík Nordica um síðustu helgi og við það tækifæri voru ýmis verðlaun veitt.

Hvatningarverðlaun Vínjónasamtakanna voru veitt í fyrsta sinn og þau hlaut Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli fyrir að stuðla markvísst og ákveðið að aukinni vínmenningu á landinu.

Á Uppskeruhátíðinni var einnig tilkynnt um vínin sem fengu í ár Gyllta Glasið eftirsótta – 5 hvítvín og 5 rauðvín af 45 sem kepptu. Vínin áttu að vera frá Evrópu og í verðflokki á milli 1490 kr og 2490 kr. Þetta er þriðja árið sem Vínþjónasamtökin veita viðurkenninguna um “Gyllta Glasið” og tilgangur með því er að vekja athygli á 10 vínum sem standa uppúr, 5 hvít og 5 rauð – án þess að flokka þau nánar innbyrðis. Fjörtíu og fimm vín skiluðu sér í keppnina. Vínþjónasamtökin svo og fulltrúar þeirra birgja sem óskuðu þess mynduðu dómnefndina þar sem 15 manns sátu og smökkuðu blint. Eins og fyrr var mjótt á munum og í sumum tilfellum munaði bara einu stigi á milli vína. Spænsk vín voru áberandi núna – en eitt var enn meira áberandi: dómararnir voru að mjög miklu leyti sammála um gæði vínanna. Parker skalinn svokallaði (frá 50 í 100) var notaður, og meðaleinkunn hjá flestum var á bilinu 83 til 85, og allir nema 2 fóru yfir 90 stig. Einkunnir og meðaleinkunnir verða ekki opinberaðar þar sem öll þessi vín eru jöfn meðal jafningja í 5 efstu sæti.

Eftirfarandi vín fá Gyllta Glasið árið 2007:

Hvítvín:
Brundlmayer Gruner Veltliner 06 frá Austurríki (umboðsmaður : RJC)
Dopff Moulin Pinot Gris 05 frá Alsace, Frakklandi (Umboðsmaður : Mekka)
Drouhin Pouilly Fuissé 06 frá Bourgogne, Frakklandi (umboðsmaður : Bakkus)
Francois d’Allaines Saint Romain 04 frá Bourgogne, Frakklandi (umboðsmaður : Vínekran)
Lalande Pouilly Fuissé 04, frá Bourgogne, Frakklandi (umboðsmaður : Perlukaup)

Rauðvín:
Baron Ley Finca Monasterio 04, frá Rioja, Spáni ( Umboðsmaður : Glóbus)
Baron de ley Reserva 01 frá Rioja, Spáni (Umboðsmaður : Glóbus)
Château Barbe Blanche 04, frá Bordeaux (Lussac St Emilion), Frakklandi (Umboðsmaður : RJC)
Marquese Antinori Chianti Classico 03, frá Ítalíu (Umboðsmaður : Glóbus)
Tomassi Ripasso 04, frá Valpolicella, Ítalíu (Mekka) sem vel að merkja fær Gyllta Glasið annað árið í röð.

{ 0 comments }