Posts tagged as:

Amarone

Sushi, afmæli og heimsóknir

by Eiríkur on 31. janúar 2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við áttum ágæta helgi að öðru leyti. Guðjón vinur okkar kom í heimsókn – fyrsta skipti sem hann kemur til Uppsala. Það var því tvöfalt tilefni til að gera sér dagamun.

Guðfinna Ósk hafði óskað eftir nautalund (blóðugri!) í mat á afmælisdaginn sinn, en við ákváðum reyndar að hafa lundina daginn áður, enda líklegt að allir yrðu nokkuð saddir eftir kökuát og því lítið pláss fyrir nautasteik.  Með nautinu bauð ég upp á fondantes kartöflur, villisveppasósu og salat.  Með því drukkum við Tignanello 2005 – stórfenglegt vín að öllu leyti!  Fallega dökkt með mikla dýpt, ilmur af eik, leðri og sólberjum.  Nokkuð tannískt með góða fyllingu og langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Eftir matinn fengum við okkur súkkulaði og Tommasi Amarone 2005.  Mjög gott amaronevín, dökkt og fallegt í glasi, hnausþykkur ilmur af rúsínum og fjólum.  Góð fylling og eftirbragð sem endist lengi. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Eins og áður sagði þurftum við að fresta afmælisveislunni þegar yngri dóttirin fékk ælupest, sem blessunarlega gekk fljótt yfir án þess að nokkur annar hafi veikst (enn sem komið er…).  Við ákváðum því að fá okkur sushi (McDonalds fyrir dæturinar) og með því drukkum við Saint Clair Marlborough Riesling 2008.  Það er ljósgult vín, ilmur af melónum og apríkósum, dálítið þurrt (svona mitt á milli þess að vera þurrt og hálfsætt) og passaði vel með sushinu.  Einkunn: 7,0. Við opnuðum svo að lokum eina Brancaia Tre 2007 - frábært vín sem ég hef áður farið lofsamlegum orðum um hér á Vínsíðunni.

{ 0 comments }

Ferðaraunir, partý og pólskur bjór

by Eiríkur on 7. júlí 2009

Við vorum á ferðalagi í síðustu viku, fórum niður til Karlskrona í suður-Svíþjóð að hitta gamla kunningja, en þetta gekk ekki áfallalaust fyrir sig.

Þegar við ætluðum að leggja af stað suður á bóginn vildi bíllinn ekki fara í gang.  Allt komið inn í bílinn, börnin fastspennt í sætin og eftirvæntingin mikil – og bíllinn fer ekki í gang!  Nú voru góð ráð dýr – allir í sumarfríi, þar að auki veikindi á verkstæðinu hjá Ford-umboðinu hér í Uppsölum og ekki séns að fá tíma á næstunni.  Áður en ferðinni var aflýst ákvað ég að hringja í Dóra.  Hann kann allt sem þörf er á að kunna um bíla og vel það.  Eftir að hafa hlustað á tilraunir mínar til gangsetningar í gegnum símann var vandamálið greint og 15 mínútum síðar var bíllinn kominn í gang og við lögð af stað í ferðalagið.  Nokkrum klukkustundum síðar vorum við komin á fyrsta áfangastað – Astrid Lindgrens värld í Vimmerby, fæðingarbæ rithöfundarins ástsæla.  Dæturnar voru alsælar að komast í skemmtigarðinn og að fá að sofa í tjaldi!  Tveimur dögum síðar héldum við áfram til Karlskrona þar sem við gistum fyrst hjá Huldu og Steina.  Steini á nokkuð gott vínsafn sem er sterkt í þýskum vínum (enda lærði hann í Þýskalandi).  Fyrsta kvöldið bauð hann upp á grillaðan skötusel og risotto sem var alveg einstaklega gott.  Með þessu drukkum við þýskt hvítvín, Keller Silvaner 2007 (að mig minnir).  Ákaflega gott hvítvín með sítruskeimi og vott af grasi, hnetu og hunangi, frísklegt í munni með gott eftirbragð.

Annað kvöldið fengum við mjög gott kjúklingasalat og með því drukkum við Henri Bourgeois Sancerre Les Baronnes 2008, fallegt hvítvín með ljúfum sítrus-, krydd- og aspasilm. Í munni er vínið frísklegt með keim af sítrus og grænum berjum.  Dæmigert sauvignon blanc og mjög gott vín.  Góð kaup.

BaronnesSancerre

Eftir þetta héldum við til Bimmu og Dóra og gistum þar í tvær nætur.  Fyrra kvöldið fengum við okkur Alpha Zeta Amarone A 2006.  Dæmigert amaronevín, dökkt og fallegt með áberandi rúsínuilm, kaffi, vanillu og eik.  Í munni kröftugt og í góðu jafnvægi, tannískt með rúsínu- og eikarbragð, langt og gott eftirbragð.  Góð kaup.

AZAmarone

Síðasta kvöldið var efnt til grillveislu fyrir Íslendingana í Karlskrona sem endaði svo í góðu partýi þar sem við dönsuðum fram á nótt.  Lítið fór fyrir víndrykkju það kvöld en þeim mun meira var innbyrt af bjór, einkum hinum pólska Zywiec, sem er ljós bjór, 5,7% að styrkleika, með vægt maltbragð, smávegis af hnetum og örlítið sætur.  Nokkuð góður bjór, einkum í partýi og hitabylgju!

Zywiec

{ 0 comments }