Posts tagged as:

Antinori

Hitabylgjan heldur áfram…

Höfundur: Eiríkur Þann 12. júní 2011

Já, það er sko sannkölluð hitabylgja hérna og nánast skömm frá að segja að maður er að verða pínu þreyttur á því að það sé 26-30 stiga hiti á hverjum degi.  Pirringurinn felstu þó kannski helst í því að Theódór sefur ekki vel í þessum hita og ég er ekki enn kominn í sumarfrí!  Sumarfríinu verður reyndar að mestu leyti varið á Íslandi og því líklega best að njóta hitans meðan hann er hér.

Um síðustu helgi fengum við góða heimsókn – Gestur og Sonja komu í fyrsta skipti til okkar í Svíþjóð, en þau eru nýflutt til Stokkhólms frá Danmörku.  Þar sem þau búa í fjölbýlishúsi á Östermalm (fínt hverfi í Stokkhólmi) þá mega þau ekki grilla á svölunum hjá sér og því aldrei annað inni í myndinni en að bjóða þeim upp á grill.  Við erum nýbúin að kaupa fjórðungshluta af ungnauti og steikurnar voru einmitt orðnar passlega meyrar.  Eftir að hafa boðið þau velkomin með glasi af Leth Grüner Veltliner 2010 skelltum við Entrecote á grillið og með því drukkum við Tignanello 2006, eitt af mínum uppáhaldsvínum.  Dásamlegur keimur af sólberjum, leðri, kaffi og kryddum.  Mikil fylling, þétt tannín og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – bestu meðmæli!  Í eftirrétt fengum við okkur grillaða ávexti og ís, og með því drukkum við Jeanmaire kampavín.  Frábært kvöld sem var svo toppað með Camus XO koníaki og Tallisker vískí…

{ 0 comments }

Ítalska kvöldið

Höfundur: Eiríkur Þann 18. apríl 2010

Um síðustu helgi héldum við ítalskt kvöld heima hjá Einari Brekkan.  Við hittumst þar - ég, Einar og Johan Heinius – og elduðum stórfenglega ítalska máltíð.  Við tókum á móti gestunum með kampavíni og með því gæddum við okkur á Sedani al formaggio (sellerí með ostasósu) og Crostini alla Napoletana.  Síðan var boðið upp á Carpaccio, Pasta alla Grímsá (humarpasta alla Gutti), Risotto con fegatini (risotto með kjúklingalifur), Spinaci gratinati (gratínerað spínat), Asparagi alla Parmigiana (aspas med parmesan), Caprese (Mozarella með tómötum og basilíku) og Farsumagru (fyllt nautasteik). Þvílíkt lostæti allt saman og auðvitað verður það alltaf betra í góðra vina hóp.

Með Carpaccio drukkum við barolo frá árinu 1997 (man því miður ekki hvað það heitir – Einar, þú manst það kannski?).  Hvítvínið með pastanu og risottonu var Barone Ricasoli Torricella 2008 og með aðalréttinum drukkum við Antinori Tignanello 2001.

Stórkostlegt kvöld – takk fyrir mig!

{ 0 comments }

Sushi, afmæli og heimsóknir

01.31.2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við [...]

Lesa meira →

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum. Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í [...]

Lesa meira →

Jólaævintýri ritstjórans

01.07.2010

Við brugðum undir okkur betri fætinum og héldum til Íslands yfir jól og áramót – í fyrsta skipti síðan 2002 að við höldum jól og áramót á Íslandi.  Ferðin var þó hálf endasleppt því ég var kominn með hita nóttina fyrir brottför, var hundslappur um morguninn og nánast eins og liðið lík þegar við lentum [...]

Lesa meira →

Uppskrift að góðu kvöldi

11.27.2009

Eftir tæplega vikulanga fjarveru frá fjölskyldunni er efst á óskalistanum að eiga notalega kvöldstund í faðmi fjölskyldunnar. Við skruppum út í búð í dag og sáum þar hreindýrasteik sem við ákváðum að skella okkur á. Hún var kannski í dýrari kantinum en samt hverrar krónu virði, enda einstaklega góður biti sem við fengum á. Kjötið [...]

Lesa meira →

Sjö dauðazindir

10.29.2009

Svo gæti maður íslenskað (?) nafnið á rauðvíninu sem ég smakkaði í fyrrakvöld – 7 Deadly Zins heitir það og er, eins og nafnið gefur til kynna, amerískur zinfandel, árgangur 2007. Það hefur hlotið ágæta dóma og Einar Brekkan benti mér á að prófa þetta vín við tækifæri. Ég eldaði lasagna og ákvað að prófa [...]

Lesa meira →

Kominn í frí!

08.16.2009

Já, nú er ég kominn í vikulangt frí sem er kærkomið eftir útlegð undanfarinna vikna.  Ég hélt upp á fríið með því að grilla nautalund og bjó til bernaise-sósu (engin pakkasósa heldur alveg frá grunni).  Með þessu drukkum við Antinori Badia A Passignano Chianti Classico 2005.  Ég keypti þetta vín í fríhöfninni og það kostaði [...]

Lesa meira →

Lambalæri og … ?

03.26.2009

Á morgun erum við með matargesti sem ekki hafa komið til okkar áður (deildarstjórinn hennar Guðrúnar og maðurinn hennar).  Að sjálfsögðu bjóðum við þeim upp á íslenskt lambakjöt – ofnsteikt lambalæri með villisveppasósu, Fondantes kartöflum og salati.  Ég er ekki alveg búinn að ákveða vínið með þessu – er að spá í Seghesio Zinfandel, gæti [...]

Lesa meira →

Tignanello ’97

04.17.2008

Við kíktum til Einars og Árdísar í gær og fengum að vanda höfðinglegar móttökur. Haldiði ekki að hann hafi verið búinn að taka upp Tignanello 1997 handa okkur! Einn allra besti Tignanelloinn síðan hann kom á markað. Djúpur og fallegur litur, kominn ágætur þroski í vínið. Leður, pipar og ávöxtur mest áberandi í nefi. Gott [...]

Lesa meira →