Posts tagged as:

Argentína

Vín Ársins 2011

Höfundur: Eiríkur Þann 6. janúar 2012

Þegar velja skal vín ársins er ýmislegt sem þarf að hafa í huga – verð, gæði, framboð o.s.frv.  Þar sem Vínsíðan er skrifuð á íslensku og fyrir íslenska vínáhugamenn er einnig æskilegt að vín ársins sé fáanlegt á Íslandi og þá vandast valið, því ég hef ekki aðgang að öllu því sem er fáanlegt á Íslandi, ekki frekar en að lesendur síðunnar sem búsettir eru á Íslandi hafi aðgang að öllum þeim vínum sem ég skrifa um.

Það hvítvín sem ég varð hrifnastur af á árinu 2011 er án efa hið austurríska Leth Gruner Veltliner 2010, og rauðvín sem féllu í kramið eru m.a. Campo Viejo Crianza 2007 og Poggio al Tesoro Bolgarello 2009, en öll þessi vín urðu húsvín hjá mér á árinu 2011.

Það vín sem að lokum stendur upp úr fyrir verð og gæði, ásamt því að vera fáanlegt bæði í Svíþjóð og á Íslandi er hið argentínska Catena Zapata Malbec Mendoza 2008. Vínið hefur góðan keim af kirsu- og bláberjum, kryddi og eikartónum, er í góðu jafnvægi og endist vel.  Vínið fékk 90 stig hjá Wine Spectator og þó svo að þessi árgangur hafi ekki náð inn á topp-100 listann líkt og 2007 og 2009 þá er óhætt að mæla með þessu víni.  Argentínsk víngerð hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár og þaðan kemur nú fjöldi gæða vína á góðu verði.  Það er varla hægt að bera saman argentínsk vín í dag við þau sem okkur buðust fyrir 10 árum, slíkar hafa framfarirnar verið, og líklegt að fleiri gæðavín frá Argentínu eigi eftir að rata í hillur vínbúðanna á næstu árum, flest á mjög góðu verði.

Vín ársins 2011 á Vínsíðunni er Catena Zapata Malbec Mendoza 2008!

{ 1 comment }

Pipar, pipar

Höfundur: Eiríkur Þann 29. desember 2011

Fyrir jól fór ég í tvígang út að borða með vinnufélugunum, og í bæði skiptin fórum við á veitingastaðinn Peppar, Peppar hér í Uppsölum. Staður mun vera nokkuð vinsæll og hefur undanfarin 3 ár verið útnefndur veitingastaðir ársins af lesendum bæjarblaðsins í Uppsölum. Guðrún hefur tvívegis borðað þarna og látið vel af. Ég bar því nokkrar væntingar til staðarins og mér fannst staðurinn standa undir þeim.  Ég fékk reyndar sama mat og vín í bæði skiptin, en í seinna skiptið voru tveir aukaréttir (þ.e. við fengum fullan “avsmaksmeny”, þ.e. fjölréttamatseðil).  Fyrst fengum við laxaterrín, því næst graskers- og trufflusveppasúpu með andaconfite, þá smjörsteiktan vatnaviðni (gös á sænsku), hreindýrasteik og að lokum perur með After Eight-frauði (laxinn og vatnaviðninn fékk ég bara í seinna skiptið).

Með fiskinum og súpunni drukkum við Turkheim Alsace Riesling Reserva 2009, dæmigerður þurr riesling með apríkósum og hunangi, en með hreindýrinu drukkum við Moebius Tempranillo 2007 frá Argentínu, þægilegt matarvín með krydduðu berjabragði og ágætisfyllingu.  Bæði vínin fá 7,5 í einkunn hjá mér.

Ég tel óhætt að mæla með Peppar Peppar og hlakka til að koma þangað aftur.

{ 0 comments }

Nokkur góð frá Argentínu

03.11.2011

Argentína hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og vínin sem þaðan koma verða sífellt betri.  Verðið spillir heldur ekki fyrir, því í flestum tilvikum er það mjög viðráðanlegt.  Hér er listi yfir nokkuð góð kaup í Ríkinu/Systeminu: Alamos Cabernet Sauvignon Mendoza 2009 – 86p – 1899 ISK Alamos Malbec Mendoza 2009 – 83p – [...]

Lesa meira →

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum. Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í [...]

Lesa meira →

Ísvín frá Argentínu?

08.24.2009

Yfirleitt sér maður Argentínu fyrir sér sem hlýtt og sólríkt land, en þarlendir vínframleiðendur hafa verið að prófa sig áfram með ísvín (eiswein) og nú hefur annar árgangurinn litið dagsins ljós.  Um er að ræða sætt Malbec-vín frá Las perdices í Mendoza-héraði.  Framleiðslan er um 10.000 flöskur og megnið af því er selt innanlands.  Eitthvað hefur þó [...]

Lesa meira →

Misjöfn uppskera á suðurhvelinu

08.22.2009

Ég er alltaf spenntur að fá fréttir af nýrri vínuppskeru, og eins og venjulega koma fyrstu fréttirnar af suðurhveli jarðar: Argentína – Sumarið var þurrt og heitt, jafnvel of heitt fyrir grænu þrúgurnar en rauðvínin ættu að verða nokkuð góð. Ástralía – Þrátt fyrir mikla hitabylgju í ársbyrjun eru vínbændur í Ástralíu nokkuð bjartsýnir á [...]

Lesa meira →

Sólguð Inkanna

06.16.2009

Síðastliðið föstudagskvöld var ég veislustjóri í tæplega 500 manna veislu og stóð mig auðvitað með stakri prýði!  Veislan fór fram á Broadway og gestirnir voru að lang stærstum hluta erlendir.  Í forrétt var gestum boðið upp á koníaksbætta humarsúpu sem var bara nokkuð góð.  Aðalrétturinn var lambavöðvi með kryddhjúp (fór reyndar lítið fyrir kryddhjúpnum) og [...]

Lesa meira →

Bestu kaupin í Ríkinu ?

03.13.2009

Eftir að hafa skoðað vínlistann hjá ÁTVR (sjá síðasta pistil) dundaði ég mér líka við að reikna út einhvers konar Q/P-hlutfall, þ.e. gæði/verð sem má útleggja svona: Hvað kostar hver punktur?  Það er ágætis samanburðaraðferð en það gefur auga leið að dýrustu (og bestu?) vínin koma alltaf verst út úr slíkum aðferðum og því þyrfti [...]

Lesa meira →

Ágætt vín frá Argentínu

04.21.2007

Nágrannar okkar gáfu okkur argentískt vín þegar þau komu í grill um síðustu helgi – Santa Ana Reserve Shiraz-Malbec 2005. Vínið kemur frá Mendoza-dalnum í Argentínu og þetta er í fyrsta skipti sem ég smakka Shiraz-Malbec blöndu og hún er hreint ekki svo vitlaus! Þetta er fallega rautt vín, þokkalega dökkt en þó ekki mikil [...]

Lesa meira →

Bodegas y Cavas de Weinert Mendoza Malbec 1997

01.01.2001

Bragðmikið og þroskað¸ með bökuðum keim. (ÁTVR) Moldarkeimur, útihús og eik. Sýra yfir meðallagi, sæmilegt eftirbragð. Óspennandi vín. Einkunn: 5,0

Lesa meira →