Höfundur: Eiríkur Þann 27. ágúst 2011
Við höfum smá matarboð um síðustu helgi og buðum m.a. Gísla og Jóhönnu. Þau færðu okkur flösku af Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2010 og ég varð nokkuð ánægður að sjá þá flösku, því það er orðið ansi langt síðan ég prófaði þetta vín. Í kvöld grillaði ég svo nautakjöt á spjóti og fannst tilvalið að opna þessa flösku með. Vínið er að vanda dökkt og fallegt í glasi, unglegt en með smá dýpt. Í nefið koma fjólur, súkkulaði og lakkrís, smá pipar ásamt eikarkeim. Vínið er vel tannískt, sýran aðeins yfir meðallagi, góð fylling og eftirbragðið heldur sér þokkalega. Ágætis vín sem hentaði vel með grillinu. Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!
Höfundur: Eiríkur Þann 24. apríl 2011
Fyrirtækið Vín og Matur hefur undanfarin ár flutt inn mörg áhugaverð og spennandi vín. Þar á meðal eru vínin frá hinum ástralska d’Arenberg, sem framleiðir fyrirtaks vín og selur á góðu verði. Ég veitti þessum vínum fyrst athygli fyrir u.þ.b. tíu árum, og það voru hin frumlegu nöfn sem vöktu forvitni mína á þessum vínum. Þá voru þau ófáanleg á Íslandi og því miður var ég fluttur út til Svíþjóðar þegar þau fóru að fást á Íslandi. Það var fyrst eftir að ég flutti til Uppsala að ég komst í tæri við þessi vín, og þá fyrst The Stump Jump )Shiraz) og Hermit Crab (Viognier, Marsanne). Ég varð heldur ekki fyrir vonbrigðum með vínin (sjá umsagnir annars staðar á Vínsíðunni) en því miður hafa þau ekki enn komið í almenna sölu hér í Svíþjóð fyrr en nú, og enn sem komið er eru aðeins 3 vín til í almennri sölu, þar af 2 sem aðeins fást í fáum, útvöldum verslunum. Hér í Uppsölum er aðeins The Hermit Crab fáanlegt (99 SEK). Mörg önnur vín er þó hægt að panta og vonandi er einnig hægt að nálgast þau á Íslandi, þó svo að þau komi ekki fram á heimasíðu ÁTVR.
Hér eru nokkur dæmi um vín frá d’Arenberg:
Rauðvín:
- The Stump Jump (Grenache Shiraz Mourvedre) – 2008-árgangurinn fær 90 punkta í Wine Spectator.
- The Laughing Magpie (Shiraz Viognier) – 2008-árgangurinn fær 85 punkta í WS.
- The Footbolt (Shiraz) – 2008-árgangurinn fær 89 punkta í WS.
- The Dead Arm (Shiraz)
- The High Trellis (Cabernet Sauvignon) – 2008-árgangurinn fær 86 punkta í WS.
Hvítvín:
- The Hermit Crab (Viognier Marsanne) – 2009-árgangurinn fær 90 punkta í WS!
- The Stump Jump White (Riesling, Marsanne, Sauvignon Blanc) – 2009-árgangurinn fær 87 punkta í WS.
- The Stump Jump (Riesling) – 2009-árgangurinn fær 88 punkta í WS.
- The Money Spider (Roussanne) – 2009-árgangurinn fær 89 punkta í WS.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um þau vín sem fáanleg eru frá d’Arenberg og forvitnum er bent á að kíkja á heimasíðu fyrirtækisins.