Posts tagged as:

Austurríki

Vín Ársins 2011

Höfundur: Eiríkur Þann 6. janúar 2012

Þegar velja skal vín ársins er ýmislegt sem þarf að hafa í huga – verð, gæði, framboð o.s.frv.  Þar sem Vínsíðan er skrifuð á íslensku og fyrir íslenska vínáhugamenn er einnig æskilegt að vín ársins sé fáanlegt á Íslandi og þá vandast valið, því ég hef ekki aðgang að öllu því sem er fáanlegt á Íslandi, ekki frekar en að lesendur síðunnar sem búsettir eru á Íslandi hafi aðgang að öllum þeim vínum sem ég skrifa um.

Það hvítvín sem ég varð hrifnastur af á árinu 2011 er án efa hið austurríska Leth Gruner Veltliner 2010, og rauðvín sem féllu í kramið eru m.a. Campo Viejo Crianza 2007 og Poggio al Tesoro Bolgarello 2009, en öll þessi vín urðu húsvín hjá mér á árinu 2011.

Það vín sem að lokum stendur upp úr fyrir verð og gæði, ásamt því að vera fáanlegt bæði í Svíþjóð og á Íslandi er hið argentínska Catena Zapata Malbec Mendoza 2008. Vínið hefur góðan keim af kirsu- og bláberjum, kryddi og eikartónum, er í góðu jafnvægi og endist vel.  Vínið fékk 90 stig hjá Wine Spectator og þó svo að þessi árgangur hafi ekki náð inn á topp-100 listann líkt og 2007 og 2009 þá er óhætt að mæla með þessu víni.  Argentínsk víngerð hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár og þaðan kemur nú fjöldi gæða vína á góðu verði.  Það er varla hægt að bera saman argentínsk vín í dag við þau sem okkur buðust fyrir 10 árum, slíkar hafa framfarirnar verið, og líklegt að fleiri gæðavín frá Argentínu eigi eftir að rata í hillur vínbúðanna á næstu árum, flest á mjög góðu verði.

Vín ársins 2011 á Vínsíðunni er Catena Zapata Malbec Mendoza 2008!

{ 1 comment }

Hitabylgjan heldur áfram…

Höfundur: Eiríkur Þann 12. júní 2011

Já, það er sko sannkölluð hitabylgja hérna og nánast skömm frá að segja að maður er að verða pínu þreyttur á því að það sé 26-30 stiga hiti á hverjum degi.  Pirringurinn felstu þó kannski helst í því að Theódór sefur ekki vel í þessum hita og ég er ekki enn kominn í sumarfrí!  Sumarfríinu verður reyndar að mestu leyti varið á Íslandi og því líklega best að njóta hitans meðan hann er hér.

Um síðustu helgi fengum við góða heimsókn – Gestur og Sonja komu í fyrsta skipti til okkar í Svíþjóð, en þau eru nýflutt til Stokkhólms frá Danmörku.  Þar sem þau búa í fjölbýlishúsi á Östermalm (fínt hverfi í Stokkhólmi) þá mega þau ekki grilla á svölunum hjá sér og því aldrei annað inni í myndinni en að bjóða þeim upp á grill.  Við erum nýbúin að kaupa fjórðungshluta af ungnauti og steikurnar voru einmitt orðnar passlega meyrar.  Eftir að hafa boðið þau velkomin með glasi af Leth Grüner Veltliner 2010 skelltum við Entrecote á grillið og með því drukkum við Tignanello 2006, eitt af mínum uppáhaldsvínum.  Dásamlegur keimur af sólberjum, leðri, kaffi og kryddum.  Mikil fylling, þétt tannín og laaaangt eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – bestu meðmæli!  Í eftirrétt fengum við okkur grillaða ávexti og ís, og með því drukkum við Jeanmaire kampavín.  Frábært kvöld sem var svo toppað með Camus XO koníaki og Tallisker vískí…

{ 0 comments }

Páskafrí – enn eitt húsvínið!

04.22.2011

Þá er ég loksins kominn í páskafrí eftir langa og stranga vinnutörn.  Það spáir sól og tuttugu stiga hita hérna hjá okkur og ljóst að grillið verður vel kynt um helgina!  Ég tók mig til og keypti húsvín um daginn, og þar sem ég gat ekki alveg gert upp á milli Bolgarello og Campo Viejo [...]

Lesa meira →

Ný síða: Austurríki

03.16.2010

Þessa vikuna er ég staddur í Falun og satt að segja er ósköp lítið um að vera hérna. Það bjargar mér alveg að Meistaradeildin er í kvöld og annað kvöld, en ég reyni líka að nota tímann í eitthvað gagnlegt og er nú búinn að setja saman lítinn fróðleiksmola um Austurríki. Þessi kafli er skrifaður [...]

Lesa meira →

Gyllta glasið!

10.27.2007

Vínþjónasamtökin héldu uppskeruhátíð á Hilton Reykjavík Nordica um síðustu helgi og við það tækifæri voru ýmis verðlaun veitt. Hvatningarverðlaun Vínjónasamtakanna voru veitt í fyrsta sinn og þau hlaut Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli fyrir að stuðla markvísst og ákveðið að aukinni vínmenningu á landinu. Á Uppskeruhátíðinni var einnig tilkynnt um vínin sem fengu í ár Gyllta Glasið [...]

Lesa meira →

Kollwentz Welschriesling Eiswein 2005

11.19.2006

Hunang, mandarínur og apríkósur í nefinu. Apríkósur, mandarínu börkur, ferskjur og hunang í bragðinu, en þrátt fyrir sætleikan er þetta vín ótrúlega ferskt. Eftirbragðið er langt, bragðgott og ferskt.Þó að vínið sé hreint frábært núna, er hægt að geyma það í 7-10 ár í viðbót. Verð: 3.455 kr. (37.5 cl. fl.) ath. þarf að sérpanta. [...]

Lesa meira →

Dinstlgut Loibner Schutt Gruner Veltliner 2004

08.10.2006

Ferskt, ávaxtaríkt vín með perum og grænum pipar í nefinu. Krydd, grænn pipar, sítróna og greipaldin bragð. Eftirbragðið er langt og ferskt með smá keim af alkóhóli. Gott austurískt vín þarf ekki að vera dýrt og Gruner Veltliner vínþrúgan passar mjög vel með ansi mörgum fisk réttum. Einkunn. 8,0

Lesa meira →