Posts tagged as:

Bandaríkin

Vín ársins 2010 á Vínsíðunni

Höfundur: Eiríkur Þann 8. janúar 2011

Undanfarin ár hef ég haft þann vana að tilnefna vín ársins hér á Vínsíðunni.  Árið 2010 var nokkuð gott ár þegar vín eru annars vegar – nóg af góðum vínum á góðu verði!  Ég náði að tjá mig um 35 mismunandi vín (listinn verður birtur á næstu dögum) og var yfirleitt nokkuð ánægður með það sem ég prófaði.  Vínkælirinn minn var líka í óvenjulega góðu ástandi megnið af árinu og náði meira að segja þeirri eftirsóknarverðu stöðu að vera yfirfullur! Ástandið er enn frekar gott og nú eru mörg spennandi vín sem liggja og bíða þess að verða tekin fram þegar þeirra tími er kominn!

Þegar kemur að valinu á víni árins eru margvísleg atriði höfð til hliðsjónar – verð og gæði skipta miklu máli – en þegar öllu er á botninn hvolft er það auðvitað mín eigin skoðun sem skiptir mestu – hvaða vín var mest spennandi!

Eftirfarandi vín stóðu helst upp úr á árinu:

  • Lammershoek Red Roulette 2006 – alveg einstaklega gott vín, ávaxtaríkt með kirsuberjum, plómum og leðri mest áberandi í seiðandi angan.  Góð fylling í munni, mjúk tannín og hæfileg sýra.  Langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
  • William Fevre Chablis 2008 – góður sítrusilmur með ögn af eik, perum og smjöri, frísklegt í munni með mjúkum eikartónum.  Sítrusinn áberandi í eftirbragðinu.  Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
  • Sette Ponti Crognolo 2007 – vínið er enn mjög ungt, óvenjumiklar fjólur í ilminum ásamt plómum, leðri og smá eik.  Mikil tannín og greinilegt sólberjabragð, góð fylling og gríðarlega langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem þarfnast samt smá tíma til að þroskast betur.  Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
  • Seghesio Zinfandel 2008 – vínið er enn nokkuð ungt, sætur berja- og lakkrískeimur með vott af pipar, leðri og amerískri eik.  Í munni nokkuð þétt tannín og góð sýra, berjabragðið kemur vel fram og eftirbragðið heldur sér vel.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!
  • Domaines Schlumberger Gewurztraminer Les Princes Abbés Alsace 2007 -  ljósleitt vín með sætri angan af perum, sítrónu og smá rósakeim.  Í munni var vínið aðeins sætara en maður býst við af Gewurztraminer, góð sýra og fylling, örlítill möndlukeimur en þó ekki þessi týpiski hnetukeimur sem maður fær oft í Gewurztraminer.  Einkunn: 8,0 – Frábær Kaup!

En þegar kemur að víni ársins er í raun aðeins eitt vín sem kemur til greina. Ekkert vín hefur hlotið jafn mikið lof á árinu og Brancaia Tre 2007! Vínið prófaði ég fyrst í janúar og þegar upp er staðið er þetta það vín sem ég hef drukkið mest af á síðastliðnu ári (aldrei pantað jafn mikið af einu víni!) og er mjög glaður að eiga enn einhverjar flöskur í kælinum.  Vínið lenti í 10. sæti á topp-100 listanum hjá Wine Spectator árið 2009 en þar sem vínið var ekki fáanlegt hér fyrr en ár síðasta ári (og ekki prófað fyrr en þá) þá finnst mér að það eigi heima á listanum fyrir árið 2010.  Ég á reyndar líka vínið sem lenti í 6. sæi á sama lista (Barone Ricasole Castello di Brolio Chianti Classico 2006) en mér finnst þetta hafa verið miklu betri kaup.  Umsögn mín þegar ég smakkaði Brancaia Tre 2007 var á þessa leið:

Þetta er nokkuð ljóst vín að sjá, dæmigert Chianti-útlit.  Í nefið kemur kaffi- og berjailmur ásamt ögn af lakkrís og blómum.  Í munni dálítið tannískt en hins vegar mikil sýra, góð fylling og gott eftirbragð.  Frábært vín sem vakti mikla hrifningu meðal allra viðstaddra.  Vínið er blanda Sangiovese (80%), Cabernet Sauvignon (10%) og Merlot (10%), fellur undir IGT-flokkinn og gæti því tæknilega talist vera ofur-Toskani. Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup!

Það tilkynnist því hér með að vín ársins 2010 á Vínsíðunni er Brancaia Tre 2007!

Brancaia Tre

Þetta er nokkuð ljóst vín að sjá, dæmigert Chianti-útlit.  Í nefið kemur kaffi- og berjailmur ásamt ögn af lakkrís og blómum.  Í munni dálítið tannískt en hins vegar mikil sýra, góð fylling og gott eftirbragð.  Frábært vín sem vakti mikla hrifningu meðal allra viðstaddra.  Vínið er blanda Sangiovese (80%), Cabernet Sauvignon (10%) og Merlot (10%), fellur undir IGT-flokkinn og gæti því tæknilega talist vera ofur-Toskani. Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup!

{ 0 comments }

Úr tilraunaeldhúsinu

Höfundur: Eiríkur Þann 30. október 2010

Mig hafði lengi langað í gasbrennara, m.a. til þess að geta búið til Creme Brulée.  Ég varð því mjög ánægður þegar Guðrún gaf mér einn slíkan um daginn.  Það var þó fyrst í dag að ég keypti gas í brennarann og því ekki seinna vænna að skella í Creme Brulée!  Ég varð eiginlega hálf hissa þegar ég áttaði mig á því hvað það er einfalt að búa til þennan rétt – aðalatriðið er að eiga brennara!  Mér fannst tilvalið að hafa extra góðan mat í kvöld.  Ég eldaði hjartarsteik með Ratte kartöflum og kastaníusveppasósu.  Maturinn tókst ákaflega vel upp og með þessu drukkum við (réttara sagt ég) Seghesio Zinfandel 2008.  Vínið er enn nokkuð ungt, sætur berja- og lakkrískeimur með vott af pipar, leðri og amerískri eik.  Í munni nokkuð þétt tannín og góð sýra, berjabragðið kemur vel fram og eftirbragðið heldur sér vel.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Creme Bruléeið tókst líka vel upp en ég sá að það voru ákveðið tæknileg atriði sem þarf að laga – næst verður þetta pottþétt!

{ 0 comments }

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

07.16.2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn [...]

Lesa meira →

Fullkomin tvenna

12.19.2009

Í kvöld eldaði ég nautalund á hefðbundinn hátt (salt og pipar, skorin í tommuþykkar sneiðar, steikt á vel heitri pönnu í 3-4 mín á hvorri hlið, rauðvínssósa, kartöflur og salat með) sem tókst einstaklega vel, sennilega vegna þess hve hráefnið var gott.  Við keyptum nefnilega fjórðung úr nauti af bónda hér í nágrenninu (hef reyndar [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2009

11.20.2009

Þá er það ljóst – vín ársins 2009 hjá tímaritinu Wine Spectator er Columbia Crest Columbia Valley Cabernet Sauvignon Reserve 2005!  Þetta er tiltölulega ódýrt vín frá “venjulegum” bandarískum framleiðanda, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir góð vín á góðu verði.  Hann hefur ekki verið að gera neina “blockbusters” hingað til en kannski verður [...]

Lesa meira →

Kominn heim, árinu eldri!

10.10.2009

Þá er Falu-dvölinni lokið í bili, fer reyndar aftur þangað í lok nóvember.  Þessi vika var frekar róleg – ég fór ekkert út að borða, ekki einu sinni á afmælinu mín en þá var ég reyndar boðinn í mat hjá Þorsteini Ástráðssyni og Berglindi Árnadóttur.  Þau buðu upp á Tikka-lax að hætti Jamie Oliver, sem [...]

Lesa meira →

Hryggur og Beringer

10.03.2009

Ég er að fara til Falun í næstu viku og verð því að kúldrast á hóteli eina vikuna enn.  Ég á líka afmæli í næstu viku og við ákváðum að halda smá forveislu í kvöld.  Okkur langar í góðan mat og gott vín!  Ég er því búinn að setja lambahrygg í ofninn og taka fram [...]

Lesa meira →

Sumarhátíðin

06.28.2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, [...]

Lesa meira →

Bragðlaukaorgían

06.23.2009

Í nýafstaðinni Íslandsheimsókn okkar vorum við boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns.  Þau búa á Álftanesinu í námunda við húsbrjótinn alræmda (réttara sagt, hann bjó þarna nálægt). Það er alltaf gaman að koma heim til Hugrúnar og Hemma.  Þau töfra alltaf fram dásamlega rétti og Hemmi kann sko að velja vín við hæfi!  Að [...]

Lesa meira →

Gómsæt gæs

05.24.2009

Í gær ákváðum við að það væri kominn tími á gæsabringurnar sem við höfum átt í frystinum síðan í fyrra.  Það er auðvitað ómögulegt að láta svona fínt kjöt bíða of lengi og því ekki seinna vænna en að gæða sér á þessu lostæti. Ég ákvað að nota uppskrifina sem er að finna í Landsliðsbók [...]

Lesa meira →