Höfundur: Eiríkur Þann 25. maí 2011
Nú er ég í stuttri útlegð í Falun (heim á morgun) og til að stytta mér stundir er ég búinn að vera að vinna í árgangstöflu fyrir Vínsíðuna, vonandi get ég sett hana inn á síðuna fljótlega (helst á PDF-sniði svo hægt sé að prenta hana út). Ég leit við í Vínbúðinni hérna og tók með eina hálfflösku af Barone Ricasoli Chianti Classico Rocca Guicciarda 2006. Þetta er fyrirtaks Chianti Classco, fallega rautt með góða dýpt í litnum. Í nefið koma strax ber og plómur með smá kryddi. Góð fylling, talsvert að tannínum sem þó eru nokkuð mjúk. Langt og gott eftirbragð. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup! Hálfflaskan kostar 79 SEK, heilflaska 139 SEK sem er fínt verð fyrir gott vín.
Höfundur: Eiríkur Þann 1. desember 2010
Við héldum ítalskt kvöld um helgina og buðum Keizaranum í mat ásamt fjölskyldu. Við fengum okkur Bollinger Special Cuvée í fordrykk – einstaklega gott kampavín með ljúfum sítrus- og hnetukeim. Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Aðalrétturinn var Farsumagru – fyllt nautasteik frá Sikiley – sem tókst einstaklega vel. Ég gerði líka ítalskt kartöflugratín sem var bara nokkuð gott. Með þessu drukkum við fyrst Sette Ponti Crognolo 2007, sem er s.k. súper-Toscani, gert úr Sangiovese, Cabernet Sauvignon og Merlot. Vínið er enn mjög ungt, óvenjumiklar fjólur í ilminum ásamt plómum, leðri og smá eik. Mikil tannín og greinilegt sólberjabragð, góð fylling og gríðarlega langt og gott eftirbragð. Frábært vín sem þarfnast samt smá tíma til að þroskast betur. Einkunn: 9,0 – Bestu Meðmæli.
Vín kvöldsins - Crognolo, Bollinger, Ricasoli
Við opnuðum líka Castello di Brolio Barone Ricasoli Chianti Classico 2006 (sjá aðra umsögn) – annað frábært ítalskt vín til að toppa frábært kvöld. Það eina sem ég var ekki nógu ánægður með var Tiramisúið mitt – það er alltaf of lint, sama hvað ég reyni. Ég held að ég þurfi að leita ráða hjá Árdísi Brekkan…