Posts tagged as:

Beaujolais Nouveau

Beaujolais Nouveau

Höfundur: Eiríkur Þann 23. nóvember 2011

Á þriðja fimmtudegi nóvembermánaðar er heimilt að hefja sölu á Beaujolais Nouveau.  Þetta var fyrst leyft árið 1951 og því má segja að Beaujolais Nouveau fagni 60 ára afmæli í ár.  Þetta var mjög vinsælt fyrir u.þ.b. 15 árum (hver man ekki eftir því þegar íslendingar fluttu þetta til landsins með einkaþotu?) en vinsældirnar hafa heldur dalað að undanförnu en nú er þetta kannski aðeins að rétta úr kútnum (kannski eftir vinsældir 2009-árgangsins, sem var einn sá bestu í sögu Beaujolais).  Sumir segja að vínið gefi fyrirheit um gæði árgangsins, en ég er ekki viss um að svo sé, enda eru vínin um margt mjög frábrugðin hefðbundnum Beaujolais-vínum og kannski hægt að segja að það eina sem þessi vín eiga sameiginlegt sé þrúgan í þeim (Gamay).

Ég er alveg búinn að missa áhugann á þessum vínum, því mér finnst þetta óttalegt glundur og hrein sóun að eyða peningum í þetta.  Meira verður ekki fjallað um Beaujolais Nouveau á Vínsíðunni þetta árið!

{ 0 comments }

Beaujolais Nouveau

Höfundur: Eiríkur Þann 25. nóvember 2010

Það fer sífellt minna fyrir Beaujolais Nouveau með hverju árinu.  Liðnir eru þeir tímar þegar vínið var flutt með einkaþotu til landsins og opnað með pompi og prakt á helstu veitingahúsum Reykjavíkurborgar (og annarra borga víðs vegar um heiminn).  Flestir eru búnir að átta sig á því að þetta er ekkert merkilegt vín og það hefur nákvæmlega ekkert að segja um uppskeru ársins, hvort hún verði góð eða slæm.  Þetta eru mjög sýrurík vín með miklu berjabragði og varla hægt að halda því fram að þau séu góð borðvín – eiginlega passa þau ekki með neinu (nema kannski kalkún á Þakkargjörðardegi?).  Það eru liðin nokkur ár síðan ég prófaði þetta vín síðast og sannast sagna þá sakna ég þess ekki neitt.

Fyrir þá sem þrátt fyrir allt vilja prófa er helst að benda á vínið frá George Duboeuf.

{ 0 comments }

Beaujolais Nouveau eða jólabjór?

11.25.2009

Beaujolais Nouveau kom í hillurnar í síðustu viku. Ástæða þess að ég hef ekkert fjallað um það fyrr en nú er einfaldlega sú að ég er alveg búinn að missa áhugann á þessu sulli. Einu sinni var þetta spennandi og hypað á allan mögulegan hátt en mesti áhuginn hefur dvínað undanfarin ár. Beaujolais hefur svo [...]

Lesa meira →

Nýjabrumið farið?

11.22.2007

Beaujolais Nouveau kom (og fór?) í ár án þess að maður tæki mikið eftir því. Sjálfur hafði ég reyndar ákveðið að láta það eiga sig því ég er eiginlega kominn með leið á þessu glundri – finnst lítið varið í það og nota peninginn frekar í betri vín. Ég er enn að velta fyrir mér [...]

Lesa meira →