Posts tagged as:

Beringer

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

Höfundur: Eiríkur Þann 16. júlí 2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn sem var marineraður og grillaður á teini.  Nonni kom með grænfóðrið og það kom allt úr garðinum hans uppi á Skaga.  Kalli sá um eftirréttinn og Doddi lagði til húsnæði.  Ég kom með vínið og bauð upp á Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2007 og Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 2007.  Montes Alpha var ávaxtaríkt (sólber og kirsuber), sæmilega tannískt með mjúkri eik, frísklegt og féll vel að grillaðri villibráðinni.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup! Beringer var frísklegur með góðum sítrus- og ananaskeim.  Ágætis fylling og gott eftirbragð.  Smellpassaði við skötuselinn.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

Af ýmsum ástæðum náðum við ekki að heimsækja alla þá sem við ætluðum að heimsækja í þessari Íslandsheimsókn og allir þeir sem eiga í hlut eru beðnir velvirðingar á því – við bætum úr því næst!

Nú er ég kominn heim í hitabylgjuna og tekinn til við nýjungina sem ég tók upp á í fyrra – bjórsmökkun!  Ég er búinn að kaupa ýmsar nýjar tegundir, þar á meðal ýmislegt sem mér myndi annars aldrei detta í hug að prófa.  Nánar um það síðar.

{ 0 comments }

Nammi namm!

Höfundur: Eiríkur Þann 4. október 2009

Já, hryggurinn var algjört nammi og ekki var vínið síðra!  Hryggurinn var eldaður á gamla mátann og var meyr og mjúkur þegar hann kom út úr ofninum.  Meðlætið var klassísk rauðvínssósa, kartöflur og salat.  Með þessu drukkum við svo Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004.  Þetta er alvöru amerískur cabernet-bolti eins og ég vil hafa þá.  Kraftmikið vín, hnausþykkur ilmur af amerískri eik (aðeins brenndur keimur, franska eikin meira eins og blautur viður), plómum og sólberjum.  Öflug tannín sem aðeins eru farin að mýkjast (víninu var umhellt u.þ.b. 1½ klst áður), mikil fylling og vínið feiknagott! Dásamlegt eftirbragð sem hefði þótt mátt vera aðeins lengra.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Hér erum við að tala um vín sem kostar aðeins 5.999 í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli (í brottfararverslun) og því tvímælalaust hægt að mæla með því við alla sem þar eiga leið um.  Sjálfur ætla ég að kippa einni eða tveimur flöskum með mér næst þegar ég fer þarna um (næstu jól/áramót).  Athugið að skv. Wine Spectator (sem gefur víninu 93 punkta) kostar þetta vín um 116 dollara í Ameríku, sem gera um 14.500 krónur, þannig að þetta er algjört brunaútsöluverð!

{ 1 comment }

Hryggur og Beringer

10.03.2009

Ég er að fara til Falun í næstu viku og verð því að kúldrast á hóteli eina vikuna enn.  Ég á líka afmæli í næstu viku og við ákváðum að halda smá forveislu í kvöld.  Okkur langar í góðan mat og gott vín!  Ég er því búinn að setja lambahrygg í ofninn og taka fram [...]

Lesa meira →

Beringer í kassa?

05.30.2009

Vígin falla hvert af öðru – meira að segja Beringer er farinn að framleiða kassavín!  Ég fékk ábendingu um að nú væri Beringer Cabernet Sauvignon komið sem kassavín, reyndar aðeins fáanlegt sem sérlistavín hérna í Svíþjóð.  Ég ákvað að panta mér einn kassa svona til að prófa, enda alltaf verið hrifinn af Beringer Cab og [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Miðlungskvöld

12.04.2008

Já, það er eiginlega hægt að segja að vínsmökkunin heima hjá Dr. Leifssyni hafi verið miðlungskvöld hvað varðar vínin sem smökkuð voru, því þar var fátt sem stóð upp úr.  Partíið sem fylgdi á eftir var hins vegar ágætt! Fyrst prófuðum við Beringer Old Vine Zinfandel 2005.  Ljósleitt og ungt vín með angan af lakkrís, [...]

Lesa meira →

Topp 100 hjá WS

11.19.2008

Ég var að kíkja á topp-100 listann hjá Wine Spectator.  Sé að Chateau Clerc Milon 2005 er í 11. sæti og vinur minn Don Melchor 2005 frá Concha y Toro er í 12. sæti.  Síðan fer lítið fyrir kunnuglegum andlitum fyrr en kemur að 47. sæti þar sem Beringer Chardonnay Private Reserve 2006 hafnaði, en [...]

Lesa meira →

Fyllt á vínskápinn

08.04.2008

Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala.  Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) – Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]

Lesa meira →

Fyrir næstu innkaupaferð

09.08.2007

Það hefur verið fátt um fína drætti í mínum vínkaupum að undanförnu. Guðrún kom reyndar heim með Torres Mas La Plana og Penfolds Bin 407 í gær, sá síðarnefndi kærkominn gamall vínur sem ekki er fáanlegur hér í sænska systeminu. Mig dauðlangar þó að fara að panta mér eitthvað skemmtilegt og hef því verið í [...]

Lesa meira →

Kringlubúðin 20 ára!

08.16.2007

Getið þið trúað því? Það eru 20 ár síðan vínbúð ÁTVR var opnuð í Kringlunni. Búðin þótti framúrstefnuleg og meðal nýjunga var að viðskiptavinirnir gátu sjálfir valið sér vín úr hillunum í stað þess að fá það afhent yfir búðarborðið! Þá voru einnig strikamerkjalesarar og afgreiðslukassar líkt og í matvörubúðum! Að hugsa sér, það eru [...]

Lesa meira →