Posts tagged as:

Bjór

Jólabjórinn kemur eftir helgi!

Höfundur: Eiríkur Þann 12. nóvember 2011

Jólum og öðru helgihaldi fylgja ýmsir siðir og eitt af því sem við njótum nú í meira mæli en áður er jólabjór.  Undanfarin ár hefur hlutfall jólabjórs verið um 15% af heildarsölu bjórs á þeim tíma sem hann hefur verið í sölu (15. nóv til 31. des) – rúmlega 330.000 lítrar seldust í fyrra.  Jólabjórinn kemur í vínbúðirnar á þriðjudaginn en ÁTVR er auðvitað ekkert á því að láta okkur vita fyrirfram hvaða tegundir verða á boðstólum, heldur nægir þeim að nefna að það verða 15-20 tegundir í sölu, líkt og í fyrra.

Hér í Svíþjóð kemur jólabjórinn í búðir á mánudaginn en nú þegar má sjá hvaða tegundir verða í boði, hvað sé fáanlegt í hverri búð og meira að segja hversu mikið er til að hverri tegund í búðunum!  Í ár er einn íslenskur jólabjór fáanlegur í almennri sölu – Jólabjór frá Brugghúsinu Ölvisholti.  Hann verður meira að segja fáanlegur í vínbúðinni minni!

{ 0 comments }

Nokkrar góðar komnar í hús

Höfundur: Eiríkur Þann 23. maí 2010

Vínkælirinn minn hefur tútnað dálítið út síðustu daga.  Ég fékk mínar þrjár flöskur af Dow’s 2007 árgangspúrtvíni og stefni að því að prófa eina flöskuna eftir 10 ár eða svo!  Þetta er besta púrtvín sem hefur komið frá Dow’s og það er ekki á hverju ári að púrtvíni fái fullt hús stiga hjá Wine Spectator.  Um daginn var svo hringt í mig frá vínbúðinni minni.  Þeir voru að taka til í hillunum sínum og fundu þá nokkrar flöskur af Casa Lapostolle Clos Apalta 2007 sem ég hafði pantað fyrir mig og Einar Brekkan.  Ég hafði aldrei fengið boð um að vínið hefði komið og var eiginlega búinn að afgreiða þetta sem svo að pöntunin hefði misfarist.  Nú er tvær slíkar flöskur komnar inn í kælinn minn og ástand hans er alveg einstaklega gott!

Í gær var auðvitað úrslitaleikur Meistaradeildarinnar og við hittumst félagarnir heima hjá dr. Leifssyni til að horfa á leikinn.  Ég hafði hitað upp fyrir leikinn með því að fara með eldri dótturina á fótboltamót þar sem þær náðu góðum árangri – einn sigur og eitt jafntefli.  Svo grillaði ég lambalæri (kryddað með blöndu af fersku timjan, rósmarín, hvítlauk, salti og pipar) og var ákaflega ánægður með útkomuna.  Með þessu drakk ég Peter Lehmann Cabernet Sauvignon Mentor 2004.  Mjög gott vín sem var orðið ágætlega þroskað – góður keimur af berjum og kryddi, mjúk tannín og þétt eftirbragð sem entist nokkuð lengi.  Passaði vel með lærinu!  Úrslit leiksins voru svo ekki alveg eins og við höfðum óskað okkur, en Keizarinn og Dr. Leifsson eru báðir mjög harðir stuðningsmenn FC Bayern (ekki Bayern Munchen eins og svo margir segja, heldur á segja FC Bayern – a.m.k. gera menn svo í Munchen).  Við náðum þó að prófa nokkrar tegundir af þýskum bjór og vonandi get ég greint betur frá þeim athugunum síðar, en dr. Leifsson hélt utanum bókhaldið og hér með er óskað eftir afriti af þeim niðurstöðum!

Ég er á leið til Falun í kvöld og get þá kannski laumað inn 1-2 færslum…

{ 0 comments }

Pörusteik á danskan máta og góð ábending

10.21.2009

Á sunnudaginn eldaði ég pörusteik á danskan máta og var bara nokkuð ánægður með útkomuna, enda ekki á hverjum degi að maður fær slíka steik hér í Svíþjóð (þeir eru vanir að fituhreinsa kjötið aðeins of vel!).  Keizarinn mætti í mat ásamt fjölskyldu sinni og ég held að hann hafi farið saddur heim. Annars hefur [...]

Lesa meira →

Þennan ber að varast!

07.08.2009

Í gær prófaði ég Carling Premier (13,90 SEK) – áfengismagn 4,7%. Þetta er lapþunnur andskoti sem allir ættu að forðast, nánast bragðlaus og með öllu óskiljanlegt að einhver skuli drekka þetta. Svona til nánari lýsingar má taka fram að bjórinn er ljósleitur, vottar fyrir humlum og sítrus í lyktinni sem hverfur alveg þegar í munninn [...]

Lesa meira →

Ferðaraunir, partý og pólskur bjór

07.07.2009

Við fórum í sumarfrí til suður-Svíþjóðar að hitta gamla kunninga og að vanda var vel tekið á móti okkur.

Lesa meira →

Frekari bjórrannsóknir

06.30.2009

Hitabylgjan heldur áfram að bræða mann og við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að kæla niður líkamann og forða frá ofþornun.  Við ákváðum því að halda áfram með bjórrannsóknir okkar: Fyrst prófuðum við Dansk Fadöl (10,60 SEK) sem þrátt fyrir nafnið er danskt, áfengismagn 5,0%. Ljóst, daufur ilmur. Bragðlítið og þunnt, gott til að svala þorstanum.  [...]

Lesa meira →

Bjórrannsóknir í hitabylgjunni

06.26.2009

Sumarið er komið hér í Uppsala – það fer ekkert á milli mála.  Allir eru léttklæddir, hámandi í sig ís og drekkandi sódavatn.  Miðaldra kerlingar sitja fyrir utan Ríkið og bíða eftir að það opni svo þær geti farið inn og keypt sér hvítvín á 1-líters fernu fyrir 50 krónur. Það er óhætt að segja [...]

Lesa meira →

Íslenskur bjór til Danmerkur

09.15.2008

Íslendingar hafa löngum verið hrifnir af dönskum bjór og teygað hann í miklu magni.  Það hlýtur til því að teljast saga til næsta bæjar þegar íslenskur bjór er fluttur út til Danmerkur! Nú hefur Ölvisholt Brugghús ehf. hafið útflutning á Skjálfta til Danmerkur.  Bjórinn mun fyrst um sinn verða fáanlegur í verslun Magasin du Nord [...]

Lesa meira →