Posts tagged as:

Bordeaux

Bordeaux 2010

Höfundur: Eiríkur Þann 23. maí 2011

Þegar 2000-árgangurinn af Bordeaux kom voru margir gagnrýnendur sem varla héldu vatni – sögðu hann stórkostlegan, betri en 1982, 1959, jafnvel betri 1947 og nánast eins og 1929 – slík voru gæðin.  Svo kom 2001 og þá voru stóru orðin ekki spöruð.  Svo kom 2003, 2005, 2007 og loks 2009 sem sagður var jafnvel betri en hinn rómaði 1929 og þar með einn besti árgangur allra tíma.  Var hægt að gera betur?  Jú, það lítur út fyrir það, því 2010 er víst ekki síðri en 2009 og þar með einn besti árgangur allra tíma í Bordeaux (Móðir allra árganga?)!

2010 er ekki hægri eða vinstri árgangur eins og oft er sagt um Bordeaux, heldur er hann Cabernet-árgangur.  Cabernet Sauvignon vinstra megin og Cabernet Franc hægra megin.  Fyrir þá sem ekki átta sig á hvað er hægri og hvað er vinstri í Bordeaux þá er átt við sinn hvorn árbakka Gironne-árinnar sem rennur í gegnum Bordeaux.  Vinstra megin eru m.a. héruðin Médoc, Haut-Médoc, St-Estephe, Pauillac, St-Julien, Margaux, Moulis, Pessac-Leognan og Graves.  Hægra megin eru aftur héruðin St-Emilion, Pomerol, Lalande-de-Pomerol og Fronsac.

Eru þetta gleðifréttir fyrir okkur venjulega vínunnendur? Varla, því þetta leiðir bara af sér hærra verð og því enn ólíklegra að við höfum efni á þriðja eða fjórða yrki, hvað þá fyrsta eða öðru.  Ekki svo sem að það hefði verið eitthvað eftir handa okkur ef við hefðum haft efni á einni flösku eða svo, því kínverjarnir virðast nú ætla að kaupa upp öll bestu vínin.

Hins vegar eru verulegar líkur á að “venjulegir” vínbændur í Bordeaux hafi einnig gert það gott í fyrra og því sennilega óhætt að láta slag standa ef maður rekst á Bordeaux-vín sem mann langar í.  Svo er einföld regla til að muna hvaða árgangar eru góðir – 2000 og 2010 og svo allar oddatölur þar á milli!

{ 0 comments }

Á Íslandi

Höfundur: Eiríkur Þann 26. júní 2010

Þessa dagana er ég staddur í fríi á Íslandi ásamt dætrum mínum og Guðrún er væntanleg í vikulokin.  Við fórum í dag og kíktum á gamlar drossíur, en Fornbílaklúbbur Íslands er með landsmót á Selfossi (þar sem foreldrar mínir búa).  Þar sáum við bæði glæsivagna og gamla skrjóða í misgóðu ástandi.

Pabbi grillaði gómsæta nautasteik og með henni drukkum við Les Tourelles des Longueville Pauillac 2005.  Ákaflega gott vín, unglegt með frísklega berjakeim þar sem einnig má finna angan af eik, leðri og tóbaki.  Rífandi tannín og sýra í góðu jafnvægi gefa góð fyrirheit um framtíðina, en þetta vín á nokkuð í land með að ná fullum þroska og væri best að geyma í a.m.k. 3-4 ár til viðbótar.  Engu að síður ljúffengt nú þegar – Einkunn: 9,0 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Lamb og rauðvín

02.27.2010

Í gær eldaði ég lambalæri, kryddað með hvítlauk og rósmarín, og bar fram með ofnsteiktu rótargrænmeti. Uppskriftina er að finna í Gestgjafanum, nánar tiltekið í blaðinu þar sem er að finna bestu uppskriftir ársins 2009. Með þessu drukkum við Les Tourelles de Longueville Pauillac 2005. Þetta er “litla” vínið frá Chateau de Longueville en samt [...]

Lesa meira →

Bordeaux 2006

10.13.2009

Næstkomandi fimmtudagur er stór dagur – þá er hægt að panta Bordeaux 2006 í Systeminu.  Þetta er ágætis árgangur (vinstri bakkinn fær 90 punkta hjá Wine Spectator, hægri bakkinn 89 punkta), mun betri en 2007 og 2008 sem eru í lakari kantinum.  Hins vegar bliknar 2006 í samanburði við 2005-árganginn sem var hreint stórkostlegur.  Í [...]

Lesa meira →

Sumarhátíðin

06.28.2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, [...]

Lesa meira →

Uppskrift að góðu kvöldi

04.26.2009

Gærdagurinn var alveg yndislegur hér í Uppsala.  Sól og blíða, og yfir 20 stiga hiti.  Við ákváðum að halda pínulitla kosningavöku og buðum Keizarafjölskyldunni í mat.  Ég grillaði nautalund (marineruð í hvítlauk, timjan og pipar) og aspas og bar fram með salati, kartöflum og piparsósu.  Útkoman auðvitað frábær!  Með þessu drukkum við Chateau Antonic, sem [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Smakkarinn.is velur vín ársins

01.14.2009

Stefán Guðjónsson á smakkarinn.is er einn af helstu vínsérfræðingum Íslands og hann hefur tilnefnt vín ársins 2008 – Chateau Lagrange 2004: Þá er komið að besta víninu sem ég smakkaði árið 2008! Vínið kemur frá einu besta ef ekki besta og þekktasta  vínræktar svæði heims, Bordeaux. Þeir sem þekkja mig vita að ég lít ekki [...]

Lesa meira →

Topp 100 hjá WS

11.19.2008

Ég var að kíkja á topp-100 listann hjá Wine Spectator.  Sé að Chateau Clerc Milon 2005 er í 11. sæti og vinur minn Don Melchor 2005 frá Concha y Toro er í 12. sæti.  Síðan fer lítið fyrir kunnuglegum andlitum fyrr en kemur að 47. sæti þar sem Beringer Chardonnay Private Reserve 2006 hafnaði, en [...]

Lesa meira →

Vín ársins

11.12.2008

Wine Spectator er nú byrjað að birta vínin á topp 10 á hinum árlega lista sínum yfir 100 bestu vín ársins.  Nú hafa verið birt hvaða vín lentu í sætum 7-10. Í 10. sæti er Seghesio Zinfandel Sonoma County 2007, 93p/24$. Í 9. sæti er Mollydooker Shiraz McLaren Vale Carnival of Love 2007, 95p/90$. Í [...]

Lesa meira →