Posts tagged as:

Bordeaux

Athuganir síðustu viku

11.02.2008

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hittist heima hjá mér í vikunni og þemað var að allir komu með eitt vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbnum: Keizarinn kom með Domaine Dominique Guyon Hautes Cotes de Nuits Les Dames de Vergy 2007.  Ljóst og kornungt Búrgúndarvín með krydduðum sólberja- og sítrónkeim ásamt útihúsakeim.  Tannínsnautt með frekar mikilli sýru, dálitlum [...]

Lesa meira →

Helgarferð til London

09.18.2008

Við hjónin brugðum okkur til London um daginn – fyrsta skipti sem við förum eitthvað barnlaus.  Keizarinn og frú fengu reyndar að fljóta með.  Dinner og söngleikur, Covent Garden, Oxford Street og svo auðvitað vínbúðin í Selfridges! Fyrsta kvöldið borðuðum við á Clos Maggiore, frönskum stað við Covent Garden.  Staðurinn hefur viðurkenninguna Best of Award [...]

Lesa meira →

Fyllt á vínskápinn

08.04.2008

Þá er viðburðaríkri Íslandsdvöl lokið og við aftur komin heim til Uppsala.  Ég passaði auðvitað upp á að kaupa pínulítið í vínskápinn minn og keypti m.a. vín sem ég hef ekki séð í mörg ár (les. síðan ég flutti út) – Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004. Þetta vín var orðið þokkalega dýrt fyrir nokkrum [...]

Lesa meira →

Datt í lukkupottinn!

07.25.2008

Í gær datt ég heldur betur í lukkupottinn! Við vorum boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns og eins og alltaf á þeim bænum var glæsilega tekið á móti okkur.  Hemmi þóttist vera með einhverja tilraunastarfsemi á forréttinum - grilluð skötuselsspjót – en maður gæti haldið að hann gerði þetta nokkuð oft því útkoman var hreint [...]

Lesa meira →

Gæðastimpill tekinn af St. Emilion

07.02.2008

Dómstóll í Frakklandi úrskurðaði í dag að vín frá St Emilion í Bordeaux héraði megi ekki lengur bera gæðastimpilinn „Grand Cru”. Verða vínframleiðendurnir nú að fjarlægja gæðastimpilinn af flöskum sínum. Þykir þetta mikið áfall fyrir vínframleiðendur í St Emilion.  „Akkúrat þegar við erum að byrja að setja framleiðslu ársins 2006 á flöskur þá verðum við [...]

Lesa meira →

Hreindýr og Torres

10.21.2007

Í gær elduðum við hreindýrasteik með skógarsveppasósu og rauðrófukartöflum. Með þessu drukkum við Torres Mas La Plana 2002 og það er óhætt að mæla með þessari tvennu. Nágrannar okkar Elín og Ásgeir voru í mat og voru nokkuð ánægð með það sem upp á var boðið. Við enduðum á því að opna einnig Chateau Batailley [...]

Lesa meira →

Chateau Batailley

10.06.2007

Það var orðið nokkuð langt síðan ég smakkaði Chateau Batailley síðast og varð því ánægður er ég sá að það voru til nokkrar flöskur í vínbúðinni minni. Verðið var hagkvæmt (299 SEK – tæplega 3 þúsund kall) og ég sló því til! Í gær opnaði ég eina flöskuna og ég veit ekki enn hvað mér [...]

Lesa meira →

Um athuganir síðustu vikna

08.10.2007

Já, þó svo að lítið hafi gerst hér á síðunni sl. 3-4 vikur þá hefur eitt og annað vín verið prófað. Tengdó komu í heimsókn og tóku með sér 2 flöskur af Chateau Cantenac Brown 2001 sem er alveg afskaplega gott vín! Sólberin, piparinn og eikin duga vel til að æra bragðlaukana sem verða ekki [...]

Lesa meira →

Fjólublái engillinn og Bordeauxboltinn!

05.20.2007

Við fengum góða gesti um síðustu helgi þegar Hugrún og Hermann komu í heimsókn. Þau tóku með sér ýmislegt góðgæti og ég reyndi því að draga fram eitt og annað lítilræði úr skápnum mínum (sem því miður er mjög lítill, en ég hef augastað á 200-flösku Bosch-kæli). Fyrsta kvöldið var fengum við okkur dálítið sushi [...]

Lesa meira →

Í sumarhúsi Marie Antoinette

04.20.2007

Ég var á námskeiði í Frakklandi nú í vikunni, nánar tiltekið í Versölum. Hótelið sem ég gisti á var aðeins nokkur hundruð metra frá höllinni frægu, en hótelið sjálft, Trianon palace, á sér þó merka sögu. Það var á sínum tíma byggt sem “sumarhús” fyrir Marie Antoinette og sjálfsagt verið notalegt lítið slot til að [...]

Lesa meira →