Posts tagged as:

Cabernet Franc

Mmmm… “M”

by Eiríkur on 10. janúar 2009

Í gær langaði okkur í góðan mat og gott vín.  Við buðum því Keizaranum og fjölskyldu hans í mat – Roastbeef með þreföldum piparhjúp og timjan ásamt rösti-kartöflum og skógarsveppasósu.  Algjört lostæti og með því þurfti auðvitað gott vín!  Fyrir valinu varð Montes Alpha “M” 2004. Vínið er frá Colchagua í Chile og er blanda Cabernet Sauvignon (80 %), Merlot (10 %), Cabernet Franc (5%) og Petit Verdot (5 %).  Mjög dökkt vín með mikla dýpt.  Enn sem komið er nokkuð lokuð lykt – leður og eik, smá ávöxtur en ekki mikið meira.  Í munni ákaflega mjúkt með mjög góða fyllingu, mikil tannín en samt með silkiáferð – frábært jafnvægi.  Springur út í munninum með ögn af eik og dökku súkkulaði.  Langt og gott eftirbragð.  Frábært vín sem hægt er að njóta núna eða geyma í nokkur ár til viðbótar (spjarar sig eflaust ágætlega í 10-15 ár!).

Montes Alpha M

{ 0 comments }

Nýtt í kælinn

by Eiríkur on 28. nóvember 2008

Ég ákvað að fara í aðra vínbúð en hverfisbúðina mína, enda á leið í vínsmökkun hjá Dr. Leifssyni.

Ég fann þar tvær flöskur sem ég ákvað að taka með heim.  Sondraia 2005 kemur frá Toscana, framleiðandinn heitir Poggio al Tesoro og ég hef aldrei heyrt á hann minnst.  Þetta er vín í Bordeaux-stíl, 65% Cabernet sauvignon, 25% Merlot og 10% Cabernet franc.  Það fær ágætis dóma á Cellartracker.com en þarfnast líklega smá geymslu og fær því að bíða betri tíma í kælinum.

Síðan keypti ég Michel Picard Chassagne-Montrachet 2006 og það ætla ég að prófa í kvöld.  Þetta er hefðbundinn búrgúndari og því hreinn Pinot Noir.  Segi meira frá því eftir smökkunina.

{ 0 comments }

Góð þrenna

02.26.2007

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við [...]

Lesa meira →

Le Dome St. Emilion 2001

12.19.2006

Mikið kaffi, karamella og ristað brauð í nefinu. Silkimjúkt vín með kaffi, kanil, eik, sólberja og rista brauðs bragði. Eftirbragðið er mjög langt með mjúku tannín og mokka kaffi.
Þetta er ekta safnaravín, gott núna en ekki tilbúið fyrr en eftir 10 ár. Jólagjöfin til vínsafnara í ár!
Verð: 13.990

Lesa meira →

Les Tourelles de Longueville Pauillac 1997

07.30.2006

Auga: Ryðrautt, talsverð dýpt, tært og tiltölulega ljóst.
Nef: Mjög skemmtileg og margslungin lykt, áberandi leður, reykur, brennd viðarkol, sæt kirsuber og marsipan, trufflur og kaffi.
Munnur: Fíngert, fágað í munni en þó mikið eftirbragð. Skemmtilegur karakter og áberandi reyktur ostur.
Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Chateau Gruaud Larose St. Julien 1995

07.30.2006

Mikil dýpt, fallegt vín, byrjandi þroski, dökkt. Í nefi lakkrís, útihús, kaffi, leður, eik, brómber, mynta, ferskjur, vanilla, súkkulaði. Mjög tannískt, gott jafnvægi og eftirbragð, sætur hratkeimur.
Einkunn: 8,0

Lesa meira →

Chateau de Tertre Margaux 1999

07.30.2006

Glæsilegur litur með mikla dýpt en í meðallagi dökkt.  Ristað brauð með smjöri, kaffi og eik fyrir þyrlun. Eftir þyrlun hverfur ristaða brauðið, kaffi og eik verða meira áberandi. Einnig grænn pipar, leður, súkkulaði, fersk paprika og vanilla. Mild en margslungin lykt með gott jafnvægi.  Vín í mjög góðu jafnvægi með keim af kaffi, leðri [...]

Lesa meira →

Antinori Tignanello 2001

01.01.2006

Tignanello er hið upprunalega “súper-Toscanavín”, en svo kallast vín frá Toscana sem ekki eru hefðbundin Chianti. Tignanello var upphaflega dæmigert Chiantivín en árið 1971 var því gjörbreytt þegar hætt var að fylgja reglum Chianti Classico Disciplinare og varð þá að “ómerkilegu” vino da Tavola della Toscana (“borðvín frá Toscana”), en flokkast nú sem IGT (Indicazione [...]

Lesa meira →

Peter Lehmann Clancy’s Red 1999

07.30.2001

Vín mánaðarins í ágúst 2001 er Clancy’s Red frá Peter Lehmann í Ástralíu. Þetta er margverðlaunað vín: fyrri árgangar hafa hlotið gullverðlaun hér og þar og síðustu tveir árgangar (1997 og 1998) enduðu báðir inni á topp-100 lista Wine Spectator yfir 100 bestu vín ársins, þar af var 1997 árgangurinn í 24. sæti árið 1999! [...]

Lesa meira →

Lindemans Coonawarra Pyrus 1996

01.01.2001

Miðlungsdýpt, frekar dökkt og brúnleitt vín, rauðbrúnt í kanti – byrjandi þroski. Blýantur, leður, marsipan, brómber, píputóbak (sætt), negull og eik. Svolítil jólalykt. Ekki mikil fylling í annars kröftugu víni. Langt og gott eftirbragð – millibragð aðeins súrt. Keimur af þroskuðum ávöxtum (sulta?). Tilbúið vín.
Einkunn: 8,5

Lesa meira →